Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 16

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 16
Tom hnyklaði brýnnar. „Um þá skamm- byssu spila ég ekki.“ „Hvers vegna ekki?“ „Það skal ég segja þér,“ svaraði Tom. „Það er vegna þess, að Skugffinn hefur átt þessa skammbyssu." Halti spilamaðurinn kipptist allur við af undrun. „Skugginn? Hvað ég hélt að þú hefðir ekki fyrr verið á þessum slóðum?“ „Það hef ég heldur ekki verið. Ég þekki ekki Skuggann. Hann hefur aldrei borið fyrir mín augu. En einn af frændum mín- um náði einu sinni í skammbyssuna hans. Þú hefur ef til vill lieyrt talað um póst- ránið, sem framið var 1 Svörtufjöllum í grennd við Garrisonville?" „Ekki minnist ég þess,“ sagði hinn hugs- andi. „Hvað gerðist þar?“ „Skugginn réðist á póstvagninn. Hann rændi öllu verðmætu af farþegunum, og var í þann veginn að fara, þegar frændi minn sendi kúlu á eftir honum. Skugginn hafði skammbyssu í báðum höndum og hóf skothríð. Hann særði frænda minn, en áður hafði frænda mínum tekizt að skjóta skammbyssuna úr annarri hendinni á honum. Þegar hann kom heim, gaf hann mér skammbyssuna. Ég hef æft mig ofur- lítið að skjóta með henni.“ Sá halti kinkaði kolli. „Við skulum þá spila um eitthvað annað,“ sagði hann. „Mig langar bara til að sjá, hvort ég hef heppn- ina með mér áfram.“ „Segðu bara til, um hvað eigum við að spila,“ sagði Tom glaðlega. „Ég hef ekk- ert.“ „Ég legg tuttugu dollara undir,“ sagði spilamaðurinn og litaðist um til þess að stinga upp á einhverju. Augu hans stað- næmdust við fjöllin, sem rétt aðeins var hægt að greina gegnum rúðurnar. „Ég legg fram tuttugu dollara á móti reiðferð yfir fjöllin þarna. Ég gizka á, að það séu um tuttugu kílómetrar. Tuttugu dollarar eru ekki mikið á móti því.“ „Nei, áreiðanlega ekki. Þetta er hjákát- leg uppástunga, en ég fellst á hana. Það er að segja, ég hef engan hest,“ sagði Tom brosandi. „Þú getur fengið einn af mínum að láni,“ sagði hinn kæruleysislega. Tom velti uppástungunni fyrir sér og hristi því næst höfuðið. „Þú vilt leggja fram tuttugu dollara á mói reiðferð yfir fjöllin — á þínum eigin hesti.“ Hann skelli- hló að fjarstæðunni í hugsuninni. „Mér stendur rétt á sama, um hvað við spilum, þetta býð ég bara til þess að geta haldið áfram að spila,“ sagði hann gremju- lega. „Gengurðu að þessu eða ekki?“ ..Auðvitað geng ég að þessu,“ sagði Tom. „Ef þú hefur ráð á því að lána hestinn þinn til þessa, þá hef ég líka ráð á því að ríða þennan vegarspotta. Ég hef nægj- anlegan tíma. Það er það eina, sem ég hef.“ Að sjálfsögðu hlaut eitthvað að liggja á bak við svona heimskulega uppástungu. Tom hallaði sér aftur á bak í stólnum og virti fyrir sér andlit mótspilarans. Hann gat ekki gert sér grein fyrir, hvað það var, sem undir lá. Hvers vegna skyldi þessi maður hafa ginnt hann til að spila peningaspil, vinna alla peningana hans og stinga því næst upp á öðru eins og þessu ? Hvað lá á bak við þetta? „Hvernig viltu nú ganga úr skugga um, hvort ég hafi riðið alla leið þangað, ef ég tapa?“ spurði hann. „Þegar þú ert kominn þangað upp — við skulum segja upp á tindinn á Samsons- fjallinu, þá getur þú tendrað bál, sem er nógu stórt til þess að sjá það héðan úr borginni." „Nú, þama lá hundurinn grafinn. Tom átti að ríða upp á tindinn á þessu fjalli og tendra bál. Já, já, það gat engin áhætta verið fólgin í því. Hann velti því fyrir sér eitt augnablik. „Ágætt, sagði hann svo. „Ég skal ganga að tilboðinu." 16 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.