Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 18

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 18
verse hest með hinu fullkomnasta bygg- ingarlagi. Aldrei hafði hann séð jafn dá- samlegt dýr og þetta, jafnvel ekki meðal hinna hreinræktuðu kynbótahesta á bú- garði föður síns. Meira að segja hafði hann aldrei á ævi sinni séð svona falleg- an lit. Dökkbrúnn með svartar dröfnur. Hin þögula hrifning hans var rofin, þeg- ar maðurinn, sem. sjálfur stóð og starði á hestinn með ljómandi augum, ávarpaði hann: „Jæja, hvað segirðu um þennan hest? Heldurðu, að hann lofti þér ekki þennan vegarspotta fram og aftur?“ „Lánaðu mér vasaljósið," sagði Tom. Hann reif það úr hendinni á þeim halta og lét ljósið líða yfir líkama dýrsins, þuml- ung eftir þumlung. Hinn dásamlegi rauð- brúni litur með svörtu dröfnunum glitr- aði eins og rauðagull í skæru ljósinu. Að lokum gekk Tom eitt skref aftur á bak og hristi höfuðið. „Ég get ekkert séð,“ sagði hann. „Hvað geturðu ekki séð?“ spurði mað- urinn hranalega. „Eg get ekkert séð, sem hægt er að setja út á hann. Hvað viltu selja þennan hest fyrir mikið?“ „Hann er alls ekki til sölu,“ sagði spila- maðurinn. „Ég . . . ég mundi miklu heldur gefa hann en selja.“ Tom Converse sagði ekki meira, held- ur tók hann fallega hnakkinn, sem var miklu léttari en venj ulegir ' hnakkar og greinilega eftir mann, sem var snillingur í faginu, og sveiflaði honum á hrygg hestins. Augnabliki síðar var hann kominn á bak. „Það er dálítið, sem mig langar til að spyrja um,“ sagði Tom. „Hvernig er hest- urinn kominn hingað?“ „Líttu upp!“ sagði sá halti. Tom lyfti höfðinu. Hengiflugið gnæfði við himin í myrkrinu yfir höfði hans eins og ógnandi veggur. „Ég reið honum niður þessa leið,“ sagði spilamaðurinn hugsandi. 18 Tom skildi undir eins, að þetta var sannleikur, og það fólst einnig eitthvað í svarinu, sem gaf honum í skyn, að það væri engin venjuleg reiðferð, sem hann nú var að takast á hendur. Halti maður- inn mundi áreiðanlega ekki trúa ókunn- um manni fyrir hesti sínum, nema hann hefði alveg sérstakar ástæður til þess. Hérna var leyndarmál, sem var vel þess vert að grafast fyrir rætumar á. „Hvað heitir hann?“ spurði Tom. „Fyrsta nafninu, sem þér dettur í hug. Það skiptir engu máli.“ „Jæja,“ sagði Tom eftir stutta þögn. „Ég skal hafa bálið svo stórt, að þú kom- ist ekki hjá því að sjá það. Og vertu nú sæll á meðan.“ Hann ætlaði að halda á stað, en í sömu svifum hljóp halti maðurinn fram og vafði báðum handleggjunum um hálsinn á hest- inum. Tom Converse heyrðist maðurinn andvarpa. Svo gekk hann aftur á bak, slökkti á vasaljósinu, og hulinn niðamyrkri næturinnar hélt Tom á stað, veltandi fyrir sér, hvað bálið á tindi Samson-fjallsins ætti eiginlega að tákna. Eitt var hann þó alveg viss um. Það var ekkert gaman, þetta, sem hann hafði tekizt á hendur. VII. Bálit) á fjallstindinum. 1 tvö ár hafði Sylvía Rann ekkert heyrt frá manninum, sem hún hafði kynnzt und- ir nafninu Skugginn. En ekki hafði sá dagur liðið, að hann kæmi henni ekki í hug. Vitundin um það, að hann skyldi halda sig svikinn í tryggðum af henni, kvaldi hana hræðilega og varpaði á hann píslarvættisljóma, sem varð ennþá bjart- ari á bakgrunni þeirra glæpaverka, sem honum var kennt um. Hún talaði aldrei um hann við nokkurn mann, en sú stað- reynd ein, að hún skyldi allt af finna sér einhverja átyllu til þess að draga sig í hlé, þegar glæpaverk hans bar á góma, var nægjanleg til þess að gera mönnum HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.