Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Side 19

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Side 19
ljóst samhengið. Enginn, ekki einu sinni fósturforeldrar hennar, álösuðu henni fyr- ir þetta, enda þótt auðvelt væri að geta sér til um áhyggjur þeirra, þó ekki væri nema á svipnum einum. Það versta af öllu var, að Benn upp- eldisbróðir hennar, einkabarn Plummers, skyldi í hinni blindu tilbeiðslu sinni á Sylvíu hafa gert hetju hennar að sinni fyrirmynd. 1 hrifningu æskuáranna á hin- um dæmafáu afrekum þessa afbrotamanns hafði hann gert örlagaríkt afglap, sem hafði þær afleiðingar í för með sér, að hann sat nú í fangelsinu í Carlton, hand- tekinn fyrir innbrot og tilraun til þess að brjóta upp peningaskáp. Sorg foreldr- anna var engin takmörk sett, og það var ómögulegt annað, en Sylvía hlyti að finna til hinnar þögulu örvinglunar þeirra og ásökunar í hennar garð. Um kvöldið, sem Tom Converse tókst á hendur hina einkennilegu reiðferð sína til Samson-fjallsins, sat hún niðursokkin í dapurlegar hugleiðingar við gluggann í litla herberginu sínu og starði út í myrkr- ið. Hugsanir hennar hvörfluðu eins og oft áður til Skuggans — ekki vegna róman- tískra draumóra, heldur vegna þess, að hann var einasti maðurinn, sem hún gat hugsað sér að leita hjálpar hjá, og sem fær var um að hjálpa. Hann, sem gat framkvæmt hið ótrúlegasta, hugrakkur og fífldjarfur sem hann var, mundi einnig geta náð Benn út úr fangelsinu, og hver svo sem hann var, og hvað svo sem hann var, þá vissi hún, að hún mundi fylgja honum til enda veraldarinnar, ef hann gerði þessa þrekraun fyrir hana. Og allt í einu, eins og það væri svar við hinni þögulu áköllun hennar, glitraði ljós í myrkrinu langt, langt í burtu. Glampi þess dró að sér athygli hennar, og í fyrst- unni hélt hún, að þetta væri stjarna. En á fáeinum sekúndum var hún orðin sann- færð um misgrip sín. Ljósdepillinn stækk- aði og breytti um lögun. Hann óx að styrk- leika og breiddist út eins og lýsandi blóm, sem breiðir úr krónu sinni. Henni varð ljóst, að þetta hlyti að vera bál, sem tendr- að hafði verið uppi á fjöllunum. Vegna daglegra ferðalaga sinna og að- dáunar á náttúruríkinu hafði Sylvía van- izt á að brjóta heilann um það, sem fyrir augun bar. Hún var undrandi yfir því, hve bálið var skært og greinilegt. Þetta hlaut að vera fremur stórt bál, og hinn skæri ljómi benti á, að því hlyti að vera komið fyrir á áberandi stað, ef til vill á tindi einhvers fjallsins. Fyrst nú datt henni í hug, hvers konar bál þetta væri. Oft hafði hún setið við gluggann sinn í rökkrinu og starað til fjallanna. Ósjálfrátt höfðu augu hennar hvarflað til Samson-fjallsins, því að á tindi þess ætlaði Skugginn að tendra bál sitt, svo að allir menn í héraðinu gætu vitað, að hann væri kominn aftur, reiðu- búinn að hefna sín. Nú var bálið tendrað. Það var stríðs- yfirlýsing til fjandmanna hans. En Sylvía hugsaði aðeins um það, hvaða þýðingu bálið hafði fyrir hana. Hann var kominn aftur, nógu snemma til þess að hjálpa henni í þrengingunum. Allt í einu heltók ofboðsleg hræðsla hana. Hún hafði oft heyrt mennina í hér- aðinu tala um, hvað gerast mundi þann dag, sem Skugginn kæmi aftur. Eldurinn, er hann tendraði sem ógnun til annarra, átti að verða vísbendingin um ósigur sjálfs hans. Þeir ætluðu að þyrpast saman, hver einasti maður, sem valdið gat riffli eða skammbyssu, og umkringja fjallið, svo að ómögulegt yrði fyrir hann að komast undan. Sylvía vissi, að ráðagerðin um þessa sviplegu aðkomu hafði verið gerð, og að henni mundi verða framfylgt út í yztu æsar. Hún mátti til með að vara hann við þeirri hættu, sem hann var í. En hafði hún tíma til þess? Fjöldi fólks hlaut að hafa komið auga á bálið. Fréttin HEIMILISBLAÐIÐ 19

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.