Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 20

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 20
flaug nú frá manni til manns. Ef til vill voru fjandmenn hans þegar á leið til fjalls- ins. Mundi henni heppnazt að verða á undan þeim? Hún hugsaði ekki meira um spurning- una, heldur um það, hvernig bezt væri fyrir hana að snúa sér í málinu. Þetta var meira en fimmtán kílómetra reið — væri hin venjulega leið farin. En hún þekkti styttri leið, sem mundi spara henni að minnsta kosti fimm kílómetra. Miklu hættulegra var að ríða þessa leið í myrkr- inu, en hún mundi ná takmarkinu miklu fyrr, ef hún færi hana. Varlega opnaði hún dyrnar og hlust- aði. Niðri í dagstofunni heyrði hún ein- hverja tala saman. Hljómur raddanna barst þangað upp til hennar eins og lágt hvísl. Hún vissi, að gestur var hjá upp- eldisföðumum. Sheriffinn, Algie gamli Thomas, var í heimsókn. Það var framtíð Benns, sem þeir nú voru að tala um. Slyvíu gekk ágætlega niður stigann og út úr húsinu. En hér varð nýr erfiðleiki á vegi hennar. Hesthúsið var svo nálægt íbúðarhúsinu, að ógerningur yrði fyrir hana að ná hestinum út, án þess að til hennar heyrðist. Uppeldisfaðirinn mundi koma út, hið glögga auga hans mundi strax uppgötva bálið, og hann mundi ekki verða lengi að geta sér til, hvað hún hefði í hyggju. Hún hafði heyrt eitthvert hljóð að baki sér í myrkrinu. Hún leit undir eins við. Það var frís í hesti. Hesti Algies gamla! í einu vetfangi var Sylvía komin til dýrs- ins. Þetta var gullfallegur, apalgrár hest- ur, sem var jafn vel þekktur í héraðinu og eigandi hans. Brosi brá fyrir á andliti Sylvíu. Hesturinn stóð með fullum reið- týgjum, tilbúinn að taka á móti reiðmann- inum. Hún hugsaði sig ekki um eina sekúndu. I skyndi ætlaðist hún á um ístaðsólarnar, stytti dálítið í þeim, og á næsta augna- bliki sat hún í söðlinum. Hægt og varlega lét hún hestinn brokka yfir mjúka jörðina, og fyrst þegar hún var svo langt burt frá húsinu, að hún þóttist viss um, að ekki yrði tekið eftir sér, herti hún á hestinum. Hún stefndi suður á bóginn — í beinustu leið til f jalls- ins. Bálið ljómaði ögrandi, og frá tindi sínum bauð það byrginn sérhverri hættu, sem leyndist í myrkrinu við rætur fjalls- ins. VIII. Sheriffinn —/ Sheriffinn —/ Hinir ferlegu hamrar Saipson-fj allsins gnæfðu hátt við næturhimininn. I myrkr- inu fannst Tom Converse fjallið ófært yf- irferðar. En hann hafði farið þarna fram hjá þennan sama dag og tekið eftir ein- stigi, sem lá í ótal hlykkjum upp fjalls- hlíðina og upp á tindinn. Eftir tvær klukkustundir ætti hann að vera kominn þangað upp. En engu að síður liðu tvær og hálf klukkustund áður en hann staðnæmdist á staðnum, sem var takmark þessa glæfralega ferðalags hans. Honum hafði samt ekki fundizt tíminn vera lengi að líða. Hvað eftir annað varð hann að dázt að þolinmæði þeirri og fót- vissu, sem hesturinn, sem hann reið, sýndi á þessu ferðalagi. Hann gleymdi algerlega hinum sérkennilegu kringumstæðum, sem orðið höfðu til þess, að hann lagði út í þessa næturferð. Það var ekki fyrr en hann var kominn efst upp á tindinn, að honum kom til hugar, að einhver hætta gæti verið bundin við þetta leyndardóms- fulla ferðalag. Drykklanga stund stóð hann grafkyrr á tindinum og hlustaði. En það var ekkert að sjá, nema hæðardrögin fyrir neðan, sem voru eins og tröllauknar, draugaleg- ar, storknandi bárur á bak við hann og til beggja handa, og svo einstaka ljós í námaborginni neðst í dalnum, þaðan sem hann var kominn. Hvar var halti maðurinn á þessu augna- 20 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.