Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Side 21

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Side 21
bliki? Skyldi hann sitja við glug-gann í gistihúsinu með olnbogana hvílandi í gluggakistunni og stara eftirvæntingar- fullum augum upp á tindinn á Samson- fjallinu og segja þar gleiðgosalega frá, hvernig hann væri að leika sér með þenn- an ókunnuga græningja? Tom Converse fannst einhvern veginn, að fyrri ágizkunin væri sú rétta. Og svo byrjaði hann á verki sínu. Hann snaraðist úr hnakknum og tók fram litla handexi, sem halti maðurinn hafði fengið honum. Með henni hjó hann niður fjöldann allan af furugreinum og raðaði þeim upp lag eftir lag, unz kominn var hár pýramídi. Inn í köstinn og við hom hans hrúgaði hann upp þurrum sprekum og lagði því næst lauf ofan á allt saman. Þegar þessu var lokið, gnæfði bálkösturinn tuttugu fet í loft upp. Fyrst þegar kösturinn var orðinn þetta hár, kveikti hann í sprekunum í hornun- um. Eldurinn æstist strax í viðarkvoðu- ríkar greinarnar, það snarkaoi í furunál- unum, og eldstólpa lagði upp gegnum köst- inn. Augnabliki síðar læstust langar eld- tungur út í draugalegan næturhimininn. Tom Converse gekk aftur á bak, ánægð- ur eins og barn yfir hitanum og hinni dá- samlegu sýn, þegar eldtungurnar dönsuðu fram og aftur. Svo teygði hann fram höf- uðið til þess að gægjast niður í byggðina, eins og hann byggist við að sjá, hvaða áhrif þetta eldmerki hefði á íbúana þarna niðri, þar sem ljósin voru slökkt í glugg- unum eitt eftir annað, um leið og menn tóku á sig náðir. Það leið ekki á löngu, þar til hann sér til mikillar undrunar sá, að bálið hafði haft sín áhrif. Fyrst var kveikt Ijós í f j ölda glugga á næstu húsunum, og nokkr- um augnablikum seinna, einmitt þegar bál- ið logaði sem. skærast, kom Ijós í hvem gluggann á fætur öðrum, þangað til sveit- in var eins og ljóshaf niðri í dalnum. Það var engu líkara en öll sveitin hefði vaknað, og Tom Converse fannst næstum því, að hann heyrði undrunaróp manna og kvenna, sem þyrptust saman fyrir utan húsdyrnar meðan þau voru að klæða sig, til þess síðan að þjóta út og vekja ná- grannana og benda þeim á bálið á fjalls- tindinum. Hve nákvæmlega þetta svaraði til raun- veruleikans, renndi Tom ekki hinn minnsta grun í. Hann færði sig dálítið út úr hit- anum af bálinu og reyndi blístursmerkið, sem halti spilamaðurinn hafði notað, þeg- ar hann kallaði á hestinn sinn. Þegar Tom Converse hafði endurtekið blístursmerkið mjög nákvæmlega, var hon- um svarað með mjög lágu frísi, og dásam- legi hesturinn kom í ljós í hinni skæru birtu af bálinu og staðnæmdist við hlið- ina á honum. Tom klappaði hestinum á hálsinn og gladdist yfir hinu silkimjúka háralagi, en allan tímann hafði hann þó vakandi auga á Ijósunum, sem í sífellu héldu áfram að bætast í ljósadýrðina við rætur fjallsins. Var bálið ef til vill merki til félaga halta mannsins einhvers staðar langt í burtu? Ef svo skyldi vera, hvers vegna ruku þá allir íbúarnir í nágrenninu upp til handa og fóta, þegar þeir sáu bálið ? Hvernig svo sem í þessu lá — jafnvel þótt þeir sendu mann upp til þess að spyrja hvað þetta bál ætti að þýða, gat enginn komist þangað upp á minna en hálfum öðrum klukkutíma. Hann fór sér því að engu óðslega. Hve lengi hann stóð þarna, var hann ekki viss um, því að hann var sokkinn niður í þessa vakandi draumóra, sem ef til vill veita okkur sæluríkustu stundirn- ar í lífi okkar. En hann var vakinn óþyrmilega af þessum draumum. Allt í einu heyrði hann rétt hjá sér eithvert krafsandi hljóð, eins og í hesti, sem væri að koma upp brekkuna, ekki úr þeirri átt, sem hann hafði komið, heldur úr þeirri gagnstæðu. HEIMILISBLAÐIÐ 21

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.