Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 24

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 24
því við höfum hann í greipum okkar! Nú eða aldrei!“ 1 eyrum Tom Converse hafði þetta lát- ið sem hróp vitskertra manna. Þeir veitt- ust að honum, ekki eins og veitzt er að hættulegum óvini, heldur eins og ættu þeir í höggi við baneitraða eldspúandi ófreskju, sem þeir væru svo hræddir við, að þeir skytu hana niður miskunnarlaust og án nokkurrar umhugsunar. Hvað hafði hann gert af sér í náma- bænum, sem orsakað gat þessa heiftúðugu reiði gegn honum? Tveir þrjótar höfðu verið að erta hann, hann hafði slegið þá niður, þótt bæði væru þeir stærri og sterk- ari en hann. Af hans hálfu hafði það að- eins verið heiðarlegur bardagi. Skyldi ann- arhvor þeirra hafa dáið vegna þeirrar meðferðar, sem hann hafði orðið fyrir, og hinir nú safnast saman til að hefna hans? Nei, það var óhugsandi. Það var bálið, sem kallað hafði þá hingað, og bálið var gildra, sem slugni spilamaðurinn hafði lagt fyrir hann og ginnt hann í. Þess vegna hafði það líka verið, að maðurinn með gulleita andlitið hafði faðmað að sér hest- inn sinn og kvatt hann svona innilega — hann hafði vitað, að hesturinn kæmist varla lifandi úr þessari ferð. Tom hélt látlaust áfram, og við sólar- upprás kom hann til lítils fjallaþorps. Fólkið í þorpinu var í þann veginn að komast á fætur. Það var nú ekki nema til bóta, hugsaði Tom, þá gat hann fengið tækifæri til að spyrjast dálítið fyrir, áður en hann fyndi gistihús og svefnherbergi til að hvíla sig dálítið. Hann veifaði til axlabreiðs, ungs manns, á aldri við hann sjálfan. „Halló!“ kallaði Tom Converse. „Hvar er gistihúsið?" „Gistihúsið ?“ át ungi maðurinn eftir. Þegar hann leit við og sá manninn á hest- inum, tók andlit hans miklum breyting- um. Það varð í senn spyrjandi og heimsku- lega glápandi. Hann missti brennibútana úr höndum sér og hann ætlaði að rétta upp báðar hendurnar. Það var með mestu harmkvælum að hann gat stamað upp: „Gistihúsið — beint niður götuna!“ Og í skyndi laut hann niður aftur og tók að fást við brennið, en svo mikið var fátið á honum að hann missti bútana úr höndum sér jafnóðum og hann náði í þá. „Vesalings auminginn,“ sagði Tom Con- verse meðaumkunarfullur. „Það er merki- legt, að ég skyldi ekki strax sjá það á honum.“ Hann reið áfram og fann gistihúsið við næstu beygju á götunni. Hann fór með hestinn bak við húsið og inn í hesthúsið. Enginn var kominn á fætur svona snemma, svo að Tom gaf honum sjálfur hey og vatn og tók af honum hnakkinn. Svo gekk hann til gistihússins og inn í veitingastof- una. Þegar hann var seztur við borð eitt, mundi hann eftir því, að hann hafði enga peninga til að borga með. En það hafði ekki svo mikið að segja. Hann ætlaði að borga reikning sinn, þegar hann færi frá gistihúsinu, og áður mundi honum ein- hvern veginn takast að útvega sér nokkra dollara. Nú tóku að streyma að gestir. Það voru stórir og sterklegir menn, og þeir heils- uðu honum allir glaðlega. Tom Converse, sem varð því reiðari, því meir, sem hann hugsaði um nætur- ævintýri sitt, stóðst freistinguna að segja þeim fyrsta, sem hann sá, frá öllu sam- an. Honum var fullkomlega ljóst, að það væri algerlega vonlaust. Þótt það svo væri hans bezti vinur, sem hann segði þetta, væri til of mikils mælzt, að hann tryði sögunni um bálið á fjallstindinum og vit- skertu ræningjana, sem höfðu skotið á hann, án þess að gefa honum tækifæri til að útskýra málið. I stað þess byrjaði hann á morgunverði sínum, stórum skammti af svínskjöti og eggjum og miklu af kaffi. Þegar máltíðin 24 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.