Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 25

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 25
stóð sem hæzt, kom strákur þjótandi inn. Hann stóð á öndinni af ákafa. „Pabbi — pabbi!“ stundi hann upp og þaut til digra mannsins bak við veitinga- borðið. „Það er hestur inni í hesthúsinu. Sá ... sá ...“ „Dragðu andann, drengur," sagði fað- irinn og svolgraði í sig rjúkandi kaffið úr kollu sinni. „Dragðu andann og reyndu aftur.“ „Dö-dö-dökkbrúnn hestur me-me-með svartar drö-drö-dröfnur, eins — eins og ...“ „Hvað segirðu?" Maðurinn kipptist við. Hver einasti maður í veitingastofunni var hættur að tyggja. „Það er hesturinn minn,“ sagði Tom Converse. „Er nokkuð athugavert við hann?“ I einni svipan beindist allra augu að honum. Tom Converse fannst, að hin mörgu augu, sem á hann störðu, yrðu í sífellu stærri og stærri. „Er það — e-e-er það þinn hestur?“ stamaði strákurinn, og Tom sá, að svipur hans var jafnheimskulega glápandi og á unga manninum, sem hann hafði talað við úti á götunni. Tom kinkaði kolli og hélt áfram að borða mat sinn. Var þetta þorp, sem hann hafði lent í, fullt af fíflum? Allt í einu veitti hann því eftirtekt, að hendurnar á manni einum, sem sat við borðið beint fyrir framan hann, hristust svo mikið, að kaffið skvettist niður, þeg- ar hann bar bollann upp að munninum. Tom leit upp og tók eftir því, að í aug- um mannsins var þessi sami glápandi heimskingjasvipur. Nei, það var ekki heimskingjasvipur. Það var hin tryllta og taumlausa, lam- andi skelfing í eigin mynd. X. Dularfullt bréf. Tom var einkennilega innanbrjósts, þeg- ar hann lauk við morgunverð sinn. Hvern- ig stóð á því að menn voru sem skelfingu lostnir, þegar þeir komu auga á hann? Nei, það var ekki hann, sem þessu olli, heldur hesturinn. Það var bezt að sofa þetta allt úr sér. Hann stóð á fætur; þegar hann var búinn og gekk fram í veitingastofuna, en þar var nú orðið einkennilega þögult. Gestirn- ir gutu til hans augunum í mesta pukri, eins og væru þeir hræddir um að hann mundi ráðast á þá, ef þeir litu á hann. Tom gekk til veitingamannsins. „Ég vildi gjarnan fá herbergi," sagði hann. „Er það ekki hægt?“ Digri veitingamaðurinn stóð á öndinni og það hljómaði eins og andvarp um sal- inn. „Tala ég ekki nógu greinilega?“ spurði Tom gramur. ,}Ég vildi gjarnan fá her- bergi.“ Veitingamaðurinn vætti hinar blóðlausu varir sínar. „Sjálfsagt," sagði hann. „Auðvitað get- ið þér fengið herbergi, úr því að þér viljið fá herbergi.“ Hann ýtti stólnum sínum hægt aftur á bak. „Það liggur ekkert á,“ sagði Tom. ,,Þér þurfið ekkert að flýta yður. Ljúkið þér bara við að borða. Ég get vel beðið, þó að ég sé syfjaður.“ Digri maðurinn leit undrandi upp, og Tom Converse fannst, að hræðslusvipurinn á andliti hans yrði enn þá meiri. „Ég skal láta fara eins vel um yður og frekast er unnt,“ sagði hann. ^Ég skal koma undir eins.“ 1 einu vetfangi var hann staðinn á fætur. „Ég hef nú frekar lítið af peningum á mér,“ sagði Tom hreinskilnislega. „Ég verð að skima dálítið um, áður en ég get fengið peninga til að borga yður með.“ „Peninga?" át maðurinn eftir með upp- gerðarbrosi. ;,Þér þrufið ekki að borga peninga hérna.“ HEIMILISBLAÐIÐ 25

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.