Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Side 27

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Side 27
Það var steinn, sem pappírsmiða var vafið utan um. Hann tók hann upp og’ vafði pappírnum varlega utan af. Þá sá hann, að á innan- verðan pappírinn var þéttskrifað með smárri og greinilegri kvenmannshönd. Það var hvorki ávarp né undirskrift, en aðeins þetta: „Mér er fulllcomlega Ijóst, að þú kærir þig kollóttan bæði um sjálfan þig og mig. Annars hefðir þú alls ekki hafzt jafn- heimskulega að. Þú heldur ef til vill ekki, að það sé alvara• en það er það samt. Þú heldur, að þú getir sloppið úr greipum fólksins í Wentworth eins og alls staðar annars staðar, en það getur þú ekki. Það hefur kallað á hjálp. Fyrir klukkutíma síðan kom Algie Thomas frá námaborg- inni. Þeir hafa umkringt gistihúsið. Guð einn veit, hvernig ég kem þessu bréfi til þín, nema mér heppnist að henda því inn um gluggann, og Guð einn veit, hvers vegna ég skrifa það. Ef þetta á að þýða, að allt sé um garð gengið, finnst mér, að þú verðir að vita, hvað þú hefur á samvizkunni. Eg efast ekki um, að bak þitt sé nógu breitt til að bera þessa byrði. Ef til vill hlærðu aðeins að því. En ég vil, að þú fáir að vita, að Benn, sem alltuf hefur litið upp til mín, hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að eitt- hvað gott hljóti í þér að vera, og að verk þín séu verjanleg, eingöngu af því að þú annt mér. — Hann tók þess vegna að dázt að þér og dýrka þig, sem hetju si'na — hann er ekki nema unglingur ennþá. Hann ákvað að fremja hetjudáð, svo að þú veitt- ir honum eftirtekt og gerðir hann. ef til vill, að félaga þínum. Hann hefur oft tal- að um það við mig, en ég tók það bara sem bamaskap, eins og það er. En einn morgun fengum við að vita, að sprengdur hefði verið upp peningaskápur hjá kaupmanni einum í grenndinni og Benn væri grunaður um að hafa gert HEIMILISBIAÐIÐ það. Um dádegið komu fregnir um, að hann hefði verið sigraður í bardaga, þar sem hann særði tvo af þeim mönnum, sem á hann réðust. Ef til vill veiztu allt þetta og kærir þig kollóttan. En ég segi þér, að ef Benn^ sem nú situr í Carlton-fangelsinu, verður sett- ur i þrælkunarvinmi, þá er það að lang- mestu leyti þér að kenna. Ef þú aðeins gætir gert eitthvað til að hjálpa honum. Faðir hans lítur á mig á hverjum degi, og þótt hann segi ekkert, þá veit ég samt, að hann álítur það mina sök, af því að ég þekkti þig og þú vcvrst eins og þú ert. En hvers vegna á ég að skrifa meira? Þú ert, ef til vill, þegar farinn að brosa. Bara að mér mætti takast að vita vissu mína um, hvort þú hefur hjarta■ eða hvort kalt blóð rennur í æðum þínum. Vertu sæll, og Guð varðveiti þig og mig og Benn. Mér finnst einhvem veginn, að úti sé um okkur öll.“ Tom Converse hneig niður á rúmbrík- ina og þrýsti krepptum hnefunum að enn- inu. „Hvað þýðir þetta allt?“ sagði hann. „Benn í fangelsi, af því að hann sprengdi upp peningaskáp. 0g hann sprengdi upp peningaskápinn, af því að ég hafði gefið honum slæmt fordæmi! Og hérna sit ég í þessu óláns gistihúsi, meðan allt þorp- ið bíður þess. að ég komi út, svo að hægt sé að senda blýkúlurnar í hausinn á mér. Og Algie gamli Thomas er einn ..." Hann hætti og stóð í skyndi á fætur. „Ég er utan við mig. Ég er ekki með öllum mjalla. Innan skamms vakna ég og uppgötva, að mig hefur verið að dreyma þetta allt. Hver er ég? Hver er Benn? Og hver hefur skrifað þetta bréf ?“ Framh. 27 I

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.