Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 32

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 32
mörgum stundum. En ljós voru dýr og olía þekktist ekki í þá daga. Hann fór því oft til beykis, sem lofaði honum að kveikja eld í spæni á verkstæði sínu. Hér sat hann og las á meðan aðrir sváfu. Óaldarflokkur. Um þessar mundir lifðu margir land- nemanna ósiðlegu lífi. Um það leyti sem Abe kom til New Salem stafaði mörgum ógn af óaldarflokki ungra manna. Margir meðlimir flokksins voru sterkir og óbil- gjarnir og hvern þann sem fluttist á þess- ar slóðir vildu þeir gera að ,,meðborgara“, sögðu þeir. En þeir höfðu einkennilega aðferð til þess. Þeir spurðu hinn nýkomna, hvort hann vildi hlaupa í kapp við þá, slást við þá eða eitthvað þess konar. Og ef aðkomumaður svaraði neitandi og bað þá að gæta sjálfra sín skellihlógu þeir og spurðu háðslega: ,,Hvað myndir þú gera ef við klypum í nefið á þér eða spýttum tóbakslegi fram- an í þig?“ Ef aðkomumenn tóku slíkum spurning- um illa var þeim troðið ofan í tóma tunnu, sem var látin renna niður brekkuna fyrir utan bæinn, eða kaffærðir í fljótinu. Stundum voru þeir reknir með háði, sparki og barsmíðum af heilum hópi óaldar- manna út fyrir bæinn og voru þar með látnir vita, að þeir sómdu sér ekki á meðal borgara þessa bæjar. En tækju aðkomumenn hins vegar þann kostinn að slást við einhvem af óaldar- mönnunum fór venjulega illa fyrir þeim. Oft voru þeir þó á eftir teknir í félag óaldarmanna, sem urðu þá hjálpsamir félagar þeirra. Þessi þorparalýður hafði þó hingað til látið Abe í friði. Ofutt sagði líka hinar ótrúlegustu sögur um afreksverk Abes. Það var þeim víst bezt, að gæta sín gagn- vart þessum sterka og skynsama náunga. En dag nokkurn kom til orðasennu milli Ofutts og eins þorparans, sem Bill Clary hét. Og brátt snerist deilan um Abe. „Jack Armstrong“ — það var sterk- asti og heimskasti meðlimur óaldarflokks- ins — „getur slegið Abe niður jafn auð- veldlega og drengur þekkir föður sinn,“ hrápaði Bill. „Styðjið mig, styðjið mig,“ sagði Ofutt. „Mér liggur við yfirliði af að hlýða á þetta heimskulega tal. Abe getur lagt Jack á bakið og síðan difið öllum óaldarflokki ykkar í fljótið, áður en hann fær staðið á fætur.“ „Ég veðja tíu dollurum um að Abe þor- ir ekki að slást við Jack,“ hrópaði Bill. „0, þið eruð allir saman uppblásnir hænuungar og hugleysingjar,“ hrópaði Ofutt fokvondur. „Abe hefur meira afl í litla fingri sínum, en þið allir í sál ykk- ar og skrokk til samans.“ Svo flaug fregnin um að Abe og Jack ætluðu að slást eins og eldur í sinu um allt byggðarlagið. Margir veðjuðu stórum upphæðum um úrslit bardagans. Og ekki leið á löngu áður en Abe fékk áskorun, á meðan allur óaldarflokkurinn stóð glottandi umhverfis hann. „Ég vil ekki slást við Jack,“ sagði hann. „Þá getur þú ekki búið í New Salem,“ hrópaði einn úr óaldarflokknum. „Kannski ekki,“ sagði Abe í tón sem þýddi: „Hvað kemur ykkur það við!“ „Við dýfum honum þá í fljótið,“ hróp- aði þá annar. „Hvort sem þið gerið það eða ekki,“ svaraði Abraham rólegur, „vil ég ekki slást. Eg vil það ekki! — Hættið að rífa og toga í mig!“ „Þú þorir það ekki — ha!“ hrópaði ein- hver og kleip um leið í nefið á Abe. „Gætttu þín! Nú ertu of nærgöngull.“ Abe sá að lokum að þeir myndu ekki hætta að erta sig fyrr en hann sýndi þeim að hann væri sterkastur. Framh. 32 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.