Heimilisblaðið - 01.01.1977, Qupperneq 33
Kalli og Palli hafa eignast stóran kíki. „Lofaðu
mér að sjá, hvernig þú lítur út í honum!“ segir Kalli
og horfir á Palla í kíkinum. „Uss, en hvað hann
verður stór.“ „Nú má ég kíkja á þig!“ segir Palli.
Og sjáum til. Kalli verður alveg eins stór. Þegar þeir
halda heim á leið eru þeir roggnir með sig og reka
trýnin upp í loftið. „Hvað er eiginlega að ykkur?“
spyrja dýrin. „Gætið vel að hvað þið segið við okk-
ur!“ segja Kalli og Palli. „Við höfum nefnilega séð
í kíkinum okkar, að við erum stærstu dýr í heimi."
Kalli og Palli ætla í kappreiðar hvor á sínum úlf-
alda og dýrin standa viðbúin, þegar skotlð ríður af.
„Viðbúnir!" hrópar litli apinn. „Einn, tveir, ■ þrír!
BANG!“ Skotið reið af og gíraffarnir þjóta af stað.
Hver kemur nú fyrstur? Það lítur út fyrir að vera
Kalli, því að hans gíraffi er fljótari. En hvað er nú
þetta, Kalli rennur aftur eftir gíraffanum og hangir
í hala hans, á meðan Palli heldur fast um hálsinn
á gíraffanum sínum og klifrar lengra og lengra upp
eftir honum. Þegar gíraffarnir ná markinu eru þeir
hnífjafnir, en Palla er dæmdur sigur, því hann sat
uppi á hálsi gíraffans, á meðan Kalli fylgdi fast eftir
hangandi í halanum á sínum gíraffa.