Andvari - 01.01.1909, Blaðsíða 163
Fiskirannsóknir.
145
3—4 cm. og á 2. ári 8—20 cm., flesl 12—13 cm.
Munurinn á lengdinni á 0-fl. og I-fl. er því 9 cm.,
en þar sem aldursmunurinn er að meðaltali 12 mán-
uðir, þá sést af því, að lengdarvöxturinn er að meðal-
tali 3/i cm. á rnánuði. Síðari hluta júlím. eiga stærstu
seiðin af 0-fl að vera nálægt 4 mánaða gömul, frá því
að þau koma úr egginu, en þá eru þau V2 cm-» hafa
þau því vaxið nál. lVa cm. á mánuði, fyrstu mánuð-
ina. Meðallengd seiðanna sem eg veiddi í Hrútafirði
4.-6. ágúst var 5 cm., en þeirra, er Guðm. G. Bárð-
arson veiddi 2 mánuðum síðar, 6 cm. Það gefur
cm. á mánuði. Sýnir bæði þetta og liitt að vöxt-
urinn minkar þegar fram á líður og er minstur á
veturna í kuldanum. Sama hefir Schmidt fundið á
Austfjörðum. Meðallengd 0-fl. var 4—5 cm. og 1-11.
11—12 cm. í Húnaflóa; það gefur að eins 7 cm. á ári
eða rúinlega V* cm. á mánuði. En í Húnaflóa er sjór
kaldari en í Isafjarðardjúpi. 1 heitari sjónum við S.
og SV. ströndina mun vöxturinn vera fljótari. En að
því atriði vona eg að geta komið betur síðar (í næstu
skýrslu). — Um ufsann er Jiað svipað.
Eg gat þess í byrjun, hver tilgangur fiskirann-
sóknanna liefði aðallega verið og hafa þær sýnt, að
svo miklu leyti sem menn vissu ekki áður, að á
þessum svæðum er töluvert af nýtilegum fiski, að þau
liafa góð skilyrði fyrir uppvexti ungfiska og að þar
er mergð af uppvaxandi fiski af ýmsu tægi, sérstak-
lega þorski og ufsa, og ætla eg að lokum að víkja
lítið eitt nánar að því atriðinu.
Það er nú fyllilega komið í ljós, að i öllum
fjörðum, bæði þeim, sem eg rannsakaði í sumar, og
öðrum, er mesti urmull af seiðum ýmissa fiskateg-
unda á 1. og 2. ári. Allur þorri þessara seiða er
Andvari XXXIV 10