Andvari - 01.01.1909, Blaðsíða 210
192
Um fiskiveiðasýninguna
X. D E I L D.
Vísindaleg verkfæri og bókmentir, áhrærandi
flskiveiðar.
Innan pessarar deildar var sýndur mesti fjöldi af
allskonar verkfærum til veðurathugana og sævarrannsókna,
svo og mikið af kortum og teikningum. Enn fremur vóru
þar sýnd líkön og myndir af öldubrjólum og öðru pví,
sem að hafnargerð laut. har að auki vóru sýndar margs-
konar skýrslur og töflur um veiðiskap landa og landshluta,
og nokkrar lielztu nýjarbækurum íiskiveiðar. Færeyingar
höfðu sent fróðlegar skýrslur um íiskiveiðar sinar, og auð-
séð var pað, að nágrannaþjóðirnar safna miklu fullkomnari
hagskýrslum (Statistik) um fiskiveiðarnar, heldur en vér
gerum.
Til þessarar deildar taldist og vcrkfæri nokkurt, sem
sænskur úrsmiður I. P. Jensen í Ljungskila í Svipjóð liafði
fundið upp, og nefndi síldartelefón (Sildtelefon). Var
nokkurskonar sökku varpað úlhyrðis, í taug, sem lá uj)]>
á skipið. Drægist taugin í gegnum síldartorfu, þá hringdi
klukku innan í verkfæri, sem taugin var sett í samband
við, og sagði þannig til síldarinnar, sem undir var. Til
pess að verkfæri þelta kæmi að liði, þurfti skipið, sem
hana ætlaði að nota, að hafa 6—7 mílna hraða á vöku, og
var pví ætlað, að petta mundi ekki koma að miklu gagni
alment. Dómnel'ndin sæmdi þó sýnandann verðlauna-
peningi úr gulli fyrir verkfæri þetla, og pólt pað sé lítið
sem ekkert reynt, vakti pað mikla eftirtekl manna á sýn-
ingunni og má vera, að töluvert sé í pað varið. •
XI. D E I L D .
Skemtiveiðar.
Um pessa deild viljum vér vera fáorðir, enda gætti
liennar lítils. En með pví að menn hafa sér lax- og silungs-
veiðar mjög til skemlunar í Noregi, pá er sjálfsagl, að