Andvari - 01.01.1909, Blaðsíða 194
176
Um fiskiveiðasýninguna
netjunum, því þeir draga þau upp með spili, sem vélin
lireyfir.
Svo sem kunnugt er, þá er það eigi nema sunnan-
lands, sem þorskur er veiddur í net hér við land. F’ær
tilraunir, sem gerðar hafa verið með þorskanet annar-
staðar við landið, eru ónógar til þess, að sagt verði með
vissu, að neljaveiðarnar gætu víðar orðið að notum, en
þó virðast tilraunirnar frekar benda í þá áttina.
Einkennileg net eru hin svonefndu »Gýgjarneta
(Troldgarn). Hvert net er þrefalt, og er hið smáriðnasta
netjanna milli tveggja annara stórriðnari. Netslöngurnar
eru allar þrjár feldar á sömu teina, en miðnetið er stærst,
og því slakt á þvi milli liinna, þegar netið er lagt. Er
þetta gert til þess, að gangi fiskur á netið, þá smýgur
hann að vísu í gegnum yzta netið stórriðna, en lendir svo
á miðnetinu og tekur poka úr því og út í gegnum möskva
á stórriöna netinu hinum megin. Geta þannig ánetjað sig
í netinu íiskar af ýmsum stærðum, el' þeir eigi eru smærri
en svo, að þeir smjúgi smáriðnasta netið. Pessi net eru
algeng á Norðurlöndum og engir örðugleikar á því, ef
menn hér á landi vildu reyna þau, og það ætlu menn að
gera, bæði í sjó og vötnum.
Laxanœtur margar vóru sýndar, enda eru laxveiðar
slundaðar i Noregi af miklu kappi, og mátti sjá laxanætur
liggja mjög víða í sundum, víkum og vogum. Næturnar
eru nokkurskonar gildrur, sem loka inni íisk þann, sem
í þær gengur, en eigi llækir hann sig í netjunum. Torvelt
er að lýsa þessum nótum, nema þá að uppdráttur afþeim
væri látinn fylgja, og þeir, sem ættu að leiðbeina mönnum
liér á landi við notkun þessara veiðarfæra, yrði fyrst sjálfir
að stunda veiðina í útlöndum og njóta tilsagnar og leið-
lieininga þarlendra manna.
Iín furðu mundi það gegna, ef eigi mætti takasl að
veiða hér lax í sjó úti, ef hentug veiðarfæri væru notuð
og eigi skorti þekking né áhuga. Rannsókn og tilraunir
þyrítu að fara fram í þessu efni, því eigi er óhugsandi,
að lax mætli veiða sér til mikils hagnaðar, á þeim stöðv-
um jafnvel, þar sem aðrar fiskiveiðar verða ekki stundaðar
vegna þess, að lítið er um aðrar fiskigöngur, svo sem er
víða innarlega á fjörðum og þar sem grynnsli eru úti fyrir.