Jólakveðja til íslenzkra barna frá dönskum sunnudagaskólabörnum - 24.12.1913, Síða 13

Jólakveðja til íslenzkra barna frá dönskum sunnudagaskólabörnum - 24.12.1913, Síða 13
11 þakklátir, að þeir kystu skuggann hennar þegar hún gekk framhjá þeim. Flórensa dó áríð 1910. 90 ára gömul. „Gjörvallt Engiand elskaði hana og allur heimuri'nn dáðist að henni,“ sagði eitt enska stórblaðið í grein nin hana, þetta eru fögur eftirmœli og það besta við þau að þau eru sönn. □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ □ • □ Heilræði. •□• □ ♦□ •□• □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ 4. Hugsa um það helst og fremst, sem heiðurinn má næra; aldrei sá til æru kemst, sem ekkert gott vill læra. Þ'að hefir um langan aldur þótt sjálfsagt á íslandi, að allir, bæði ungir og gamlir, kynnu heilræði Hallgrims Péturssonar, en þetta á sér því miður ekki Stað lengur. Mörg börn — sérstaklega í kaupstöðunum — hafa aldrei heyrt þau, þessvegna eru ]iessi heilræði prentuð hér, og allir lesend- ur „Jólakveðjunnar11 beðnir um að læra þau og gleyma þeim ekki. 1. Ungum er það allra best, að óttast Guð sinn Herra; þeim mun viskan veitast mest og virðing aldrei þverra. 2. Hafðu hvorki háð né spott, hugsaðu ræðu mína, elskaðu Guð og gerðu gott, geym vel æru þína. 3. Foreldrum þínum þéna af dyggð, það má gæfu veita, varast þeim að veita stygð, viljirðu gott harn heita. 5. Lærður er í lyndi glaður, iof her hann lijá þjóðum, hinn er ei nema hálfur maður, sem hafnar siðum góðum. (5. Oft er sá í orðum nýtur sem iðkar menlun kæra; en þussinn heimskur þegja hlýtur, sem prjókast við að læra. 7. Vertu dyggur, trúr og tryggur tungu geymdu þína við engann styggur, né í orðum hryggur, athuga ræðu mina. 8. Lítillátur, ljúfur, kátur, leik þér ei úr máta; varastu spjátur, hæðni, hlátur, heimskir menn svo láta. 9. Víst ávalt þeim vana halt: Vinna, lesa, iðja, umfram all þú ætið skalt elska Guð og biðja. Hjálpsemi. Nálægt holdsveikraspítala einum á Ind- landi er stór akur, sem er umgirtur háum múr á allar hliðar. Spítalinn á þennan akur, og sjúklingamir eru látnir rækta hann. Ferðamaður sem kom inn á þennan akur hefir sagt, að þar haíi han séð svo ein- kennilega sjón, að honum muni hún aldrei úr minni líða. A meðal þeirra sem voru að sá í akurinn voru tveir menn, sem unnu saman á einkennilegan hátt. Annar hafði engar hendur og liinn enga fætnr, sá handalausi bar þann fótalausa á hakinu, höndurnar vóru heilar á ]»eim fótalausa, svo hann gat haldið á pokanum sem sæðið var í og sáð yfir akurinn. — Hugsum okkur ef allir reyndu að gera það sem þeir gætu lil þess að létta undir hver með öðrum, þá væri margt öðru vísi en það er.

x

Jólakveðja til íslenzkra barna frá dönskum sunnudagaskólabörnum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólakveðja til íslenzkra barna frá dönskum sunnudagaskólabörnum
https://timarit.is/publication/446

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.