Kirkjuritið - 01.10.1945, Síða 14
260
Hermann Hjartarson:
Október.
liefir sameiginlega kvatt Pál Isólfsson kirkjuorganleilc-
ara að starfi með jieim. Hann tók tilmælum nefndarinn-
ar af mikilli góðvild. Nefndin leitaði þó ekki á fund
hans, fyr en liðið var á s. 1. vetur. Og' hann hefir sagt
mér, að starf þetta þyrfti og tæki sinn tíma og enginn
kostur væri að vinna það til nokkurrar og því síður til
fullrar hlítar að þessu sinni. En leyft hefir hann mér
jafnframt að segja frá því, að hann mundi fúslega vinna
að því starfi ásamt öðrum á næstu árum og til þess er
lokið væri endurskoðun bókarinnar, ef þess verði óskað.
Mun þá þeim þætti svo vel borgið sem verða má. — Efn-
isyfirlit og flokkaskipiui er mjög sniðin að þeim liætti,
sem áður var. Þar liefir biskupinn fyrst og fremst haft
forsögn. Höfundaskrá og höfunda og þýðendur ein-
stakra sálma hefir biskupinn og annast um — og létt
þar miklu starfi af öðrum nefndarmönnum. Annað efni,
auk sjálfra sálmanna, liafa þeir haft með höndum og
gengið frá að allri gerð, biskupinn og' séra Jakob Jóns-
son. Að sjálfsögðu hefir nefndin öll staðið að vali sálma
— og varið til þess miklum tíma liver um sig — hvort-
tveggja þeirra, sem frá voru kosnir og ekki skyldu koma
til endurprentunar í nýrri útgáfu, og liinna, er inn í bók-
ina skvldu konia. Sá þáttur mun ekki síður verða athug-
aður og gagnrýndur en annað. — Sanngjarnt er að kenha
mér og Jóni Magnússyni um mestu mistökin og önnur
stærri glöp, sem kunna að liafa orðið á í þeim efnum.
Sálmabókin, sem gert er ráð fyrir að komi út í sumar
eða liaust frá hálfu nefndarinnar, er aðeins frumvarp.
Og ég legg á það áherzlu. Frumvarp er stefna —straum-
stefna —- og jafnframt ákveðinn umbúnaður, — farveg-
ur — sem menn vilja gefa einhverjum þætti — einhverri
kvísl — þjóðlífsins. Frumvarp hefir að geyma venjulega
fleiri greinar, og sé það um margþætt og mikilsvert mál,
verða greinarnar þeim mun fleiri. Þetta frumvarp geym-
ir mjög margar greinar.
Ég hefi lítið eitt drepið á höfuðsjónarmið nefndarinn-