Menntskælingur - 01.04.1949, Side 1
MENNTSK ÆLINGDR
3. tbl. Akureyri — Apríl 1949 II. árg.
THE WORLD WE WANT
Gunriar G. Schram
í desember s.l. efndi stórblaðið' ameríska New York
Herald Tribune til samkeppni meðal menntaskóla-
nema hérlendis um það, hver Jxeirra gæti skrifað
beztu greinina um Heiminn, sem við kjósum. —
Akveðið var, að sá drengur og sú stúlka er bæru
sigur úr býtum skyldi dveljast um 10 vikna skeið í
Bandaríkjum Norður-Ameríku. — Nokkrir nemend-
ur héðan af Akureyri tóku þátt í samkeppninni. —
Af drengjum skrifaði Einar Benediktsson, Rvík,
beztu ritgerðina, en Gunnar Schram, Akureyri þá
næstu. Af stúlkunum skrifaði Vilhelmína Þorvalds-
dóttir, Akureyri, beztu ritgerðina, en hún gat ekki
þegið boðið vegna veikinda. •— Hér á eftir birtist
grein Gunnars Schram.
V. Þorvaldsdóttir
FRELSI EINSTAKLINGSINS ER FRELSI ALLS HEIMSINS
Á því leikur enginn efi, að öl) óskum
við eftir nýjutn og betri heimi. Um það
eru aliir sammála. Heimi, þar sem allir
geta lifað saraan í friði og eindrægni
án ótta við framtíðina og hið óþekkta,
er hún ber í skauti sér. Sverð Damokles-
ar hefir of lengi hangið yfir höfðum
okkar í þann veginn að falla á hverju
augnabiiki. Við höfum einnig upplifað
of margar styrjaldir með öllum þeim
hörmungum og sorgum, ekkjum og
munaðarleysingj um, sem þeim eru sam-
fara. Fáni heimsins, sem við kjósum,
hlýtiír því að bera áritunina: Friður!
Frá aldaöðli hefir mannkynið þráð
nýjan og betri heim, en sagan sannar,
því miður greinilega hið gagnstæða.
Slíkur heimur var aðeins iil í hugar-
lieimum hugsjónamanna og heimspek-
inga fortíðarinnar, og það var fyrir
þann heim, sem þeir, margir hverjir,
liðu kvalafullan dauðdaga á bálkestin-
um eða höggpallinum, en ekki þann, er
við lifum nú í. Þeir voru píslarvottar
hugsjónaheima sinna, en ekki þessa.
Blöð sögunnar eru rituð blóði. Hún
segir frá stöðugum skærum, blóðsúthell-
ingum og hörmungum, frá saklausum