Menntskælingur - 01.04.1949, Qupperneq 9

Menntskælingur - 01.04.1949, Qupperneq 9
MENNTSKÆLINGUm 9 ermarnar og varð rauður í andlitinu. Stúlkutetrið hjúfraði sig upp að mér svo, að ég var ekki í neinum vafa um, hvað til bragðs skyldi taka. Ég rauk á fætur, réðist á gripinn og öskraði: —■ Hvern djöfulinn vilt þú upp á dekk við íslandsmann, aumi engelski sláni, ha? — Mótspyrna hans stoðaði lítið. Ég gaf honum einn milli augnanna, opnaði dyrnar og sparkaði honum út á götuna og skellti í lás. Verbúðarhurðinni var hrundið upp og í gættinni birtist andlit Magnúsar formanns. — Strákar, strákar, fljótir, það er farið að falla undir hátana, kallaði hann. Allir stukku á fætur, snöruðu sér í stígvélin og þustu út. Það mátti ekki tæpara standa. Brimið hafði þegar kastað mótor- bátnum á hliðina, en hann var gripinn af sterkum höndum og von bráðar var honum bjargað undan sjó. Bragi gekk til Óla. — Hvernig fór það? spurði hann. — Fór hvað? — Þarna þetta, sem þú varst að segja okkur? — Fór það? Helvítis fífl ertu, dreng- ur. Hvernig heldurðu að það hafi far- ið. Auðvitað var ég hjá henni um nótt- ina. Sigurjón Einarsson. —X— —X— VOR I bœnum fer bráðum að vora, bernskan Ijómar af kœti. Brosandi glettnar ganga, glaðvœrar meyjar um strœti. Þrœtur og illindi þagna, það er hin gamla saga; því vorið vekur að nýju vináttu horfinna daga. Garðarnir anga af grósku, grösin byrja að sprelta. JJti er gaman að ganga og gaspra um hitt og þetta. KETILL. Saga iífsíns. Sáust, kvöddust, kynntust, mœttust, kysstust, unnust, hétust, reiddust, glöddust, rifust, sœttust, resktust, eltust, létust. JÖKULL. Leiðindi. Fokið er í flestöll skjól, finnst mér allt svo einskisnýtt. Þetta líf er líkt og hjól, líkt og hjól, er einatt snýst. KETILL.

x

Menntskælingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntskælingur
https://timarit.is/publication/453

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.