Menntskælingur - 01.04.1949, Síða 15

Menntskælingur - 01.04.1949, Síða 15
MENNTSKÆLINGUR 15 sneiða alltof nærri sjálfum sér. Þeir ættu eklci að kasta grjóti, sem sjálfir búa í glerhúsum. Það er dálítið undarlegt að lesa sög- ur og Ijóð þessa ágæta höfundar, því að með stuttu millibili rekast menn á gamalkunnar setmngar „úr ljóðum“ og sögum „snillinga lifandi og dauðra“ eins og 01. Haukur konist sjálfur að orði. Óþarft er að nefna dæmi, því að öllum sem lesið hafa Ijóð eftir Stein Steinarr og sögur eftir Elías Mar ann- ars vegar og sögur og ljóð eftir Ölaf Hauk eða Álf úr Krók(i) hins vegar, hlýtur að vera þetta ljóst. Sem dærni skal þó benda á ljóðið og söguna „Haust“ í 1. tbl. þ. á. í Ijóðinu segir m. a.: „— verður hugur minn sem hljóð- andi vængstýfður fugl“. Hvaðan er fyr- irmynd þessarar setningar? Þeir, sem lesa ritfregn Ól. Hauks mættu ætla að hann væri mikið skáld og frumlegt, og eitt rná sjá á greininni, og það er, að hann hyggur sig vera það. Ég hygg að þær ráðleggingar, sem Ólafur Haukur gefur, sumum þeirra er í Menntskæling skrifa, gætu verið ágætar fyrir hann sjálfan lil að breyta eftir, eins og t. d.: „Þú ættir að temja þér léttleika og Ijóðrænu Sæmundar, vinur.“ Og: „1 fullri alvöru.sagt held ég Jökli.eins gott að steinhætta að yrkja, eða, að minnsta kosti, að birta kveðskap sinn.“ Viðvíkj- andi svardögum Ó. H. um að hann hafi aldrei séð annan eins kveðskap á prenti og kvæði „Ketils“ mega menn ætla að Ö. H. hafi alls ekki séð sum þeirra kvæða, sem getið hefir að líta á síðum Munins í vetur, a. m. k. ekki öll kvæði Álfs úr Krók. „Hún var svo tigin,“ segir joð. Heild- saladóttir eða hvað?“ spyr sá sem ekki veit,“ segir Ól. Haukur. Eru engir tignir í þínum augum nema heildsalar og heildsaladætur, Ólafur Haukur? „spyr sá sem ekki veit.“ Ekki er rúm hér til að elta ólar við allar þær firrur, er fram koma í ritfregn þessari. 01. Haukur reynir þar að löðr- unga aðra, en löðrungar um Ieið sjálf- an sig; reynir að dæma aðra, en dærnir sig um leið. Án efa hefir margt verið vel gert í Muninum í vetur og eiga margir þakkir skylið íyrir ritsmíð sín þar. Flestum mun þó bera saman um, að þar hafi verið of mikið um hið „sentimentala“. Ef sú kenning er rétt, að þeir ræði mest um konur, sem minnst þekki þær, má ætla að ýmsir þeirra er í Muninn rita séu harla lítt kunnugir þeirri dýra- tegund. Að endingu vil ég svo láta í ljósi þá von, að í framtíðinni megi Muninn vera því hlutverki sínu vaxinn að vera vett- vangur fyrir úrvalsritsmíðar nemenda og frásagnir úr skólalífinu, en ekki samsafn „háfleygra“ ljóða og hugaróra. Halldór Þ. Jónsson. GASPU R Heyrt í náttúrujrœSitíma: •— Hvar myndast rauðu blóðkornin? — I mænunni. — Hvaða efni leikur mest um líkama okkar? — Sólin.

x

Menntskælingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntskælingur
https://timarit.is/publication/453

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.