Menntskælingur - 01.04.1949, Síða 16

Menntskælingur - 01.04.1949, Síða 16
16 MENNTSKÆLINGUR í STUTTU MÁLI • ÍSLENZKAN. Osjaldan heyrir maSur ýmis konar aðfinnslur um kennsluna hér í skólan- um, eins og um skiplingu stunda milli námsgreina. Slíkt er að sjálfsögðu mjög eðlilegt, þar sem engar hömlur eru lagð- ar á málfrelsi, og á hinn bóginn misjafn áhugi nemenda. Einn vill læra þetta, annar hitt, og svo kemur hver tillagan upp á móþ annarri. Fyrir ári síðan var þetta tekið fyrir á málfundi, og komu þá bezt fram hinar sundurleitu skoðanir. En eitt virtust menn nokkuð sammála um: að íslenzku- kennslu bæri að auka að mun (í efri bekkjunum), einkum með tilliti til ís- lenzkra bókmennta á síðari öldum. Það virðist dálítið einkennilegt, að eytt skuli sex til sjö tímum í latínu- kennslu á viku hverri, ámóta í önnur mál, meðan aðeins þrem er varið íil að kenna móðurmálið. Og þar sem sú kennsla er nálega eingöngu miðuð við málfræði ,að því einu undanteknu, að sjötti bekkur les forníslenzka bók- menntasögu, þá er ekki líklegt, að sum- ir stúde.ntar viti mikið hvað ritað hefir verið á tungu vorri. Þeir kennarar, sem kenna hin útlendu mál, verja jafnan löngum tíma, til að tala um höfunda þeirra þjóða, enda er það efni að mestu tekið úr nútíðarbókmenntum. Hafa þeir, sem héðan útskrifast þannig meiri möguleika til að vita deili á þeim en sinnar eigin þjóðar. Mér hefir skilist, að á stúdentsprófi séu gerðar allharðar kröfur um kunn- áttu í íslenzku, þar mun þó hókmennt- urn harla lítil skil *gerð, og aðeins drepið á helztu atriði; aftur á móti nákvæm skrá yfir höfuðsmenn dana og ýtarleg skýrsla um kóngaætt þeirra. Væri ekki hægt að hæta við svo sem tveim stundum á viku í íslenzku, þótt það yrði þá dregið af latínu eða þýzku? BÖKASKORTUR. Bóksalar kvarta um gjaldeyrisskort, og kveðast ekki útvega bækur. — Þó mun sjaldan líða langt á milli að ensk- um Lilleputheftum og amerískum leik- arablöðum skjóti upp í hillum þeirra. Auðvilað má deila um menningargildi slíkra rita, en af flestum eru þau talin harla lélegt lestrarefni, jafnvel tæpast notuð til lestrar, heldur eins konar skraut í vistarverum gæjanna. Þó er reynsla fyrir því að góðar bækur selj- ast vel þegar þær koma, einkum bækur hinna frægari nútímahöfunda. En fyrst kastar tólfunum þegar þessi rit eru látin ganga fyrir nauðsynlegum orðabókum og námsbókum. Annars munu bóksalar ætlasl til að skólarnir afli sér eigin leyfa. HÖFUÐPRESSAN. Fyrir nokkrum dögum rakst ég á skólablað menntaskólanemenda í Reykjavík. Þótt ekki væri það tilgang-

x

Menntskælingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntskælingur
https://timarit.is/publication/453

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.