Menntskælingur - 01.04.1949, Síða 18

Menntskælingur - 01.04.1949, Síða 18
18 MENNTSKÆLINGUR ingar á fallegum og ljótum liólum. Og varla þarf að nefna smásögur og Ijóð, ef höfundar eru ekki svo úthlásnir af hofmóði, að þeir neiti leiðbeiningum lærðustu manna þjóðarinnar, en slíkt dæmi höfum vjð frá í fyrra. Annars harma ég, að formaður mál- fundafélagsins skuli ekki hafa haft hönd í bagga með efni blaðsins í vetur. Hann hefir kannske yfrið meiri innsýn í slíka hluti, en þeir sem völdust til ritstjórnar. Erlendur Jónsson. CARMINA, skopmyndir af núver- andi 6. bekkingum, er nýkomin út. Að þessu sinni eru flestar myndirnar teikn- aðar af Guðmundi Bjarnasyni, 5. bekk M, sem er vel kunnur Jesendum Mennt skælings af teiknimyndum. sem birzt hafa hér í blaðinu. Carmina er mjög vel úr garði gerð, glæsilegt handbragð á teikningunum og snjallar hugmyndir í sambandi við þær. Gaspur. Prestur nokkur var að niessa. Skyndilega tekur liann eftir því sér til núkillar skelfingar, að litli snáðinn sonur hans situr uppi á svöl- um k'rkjunnar og skýtur í ákafa baunum í skallann á söfnuðinum fyrir neðan. Prestur gretlir sig nú og yglir ásakandi í áttina til drengsins. „Pabba,“ hrópar þá'strákur, „haltu hara áfram með ræðuna, ég skal sjá um að halda þeim vakandi á meðan.“ — Hvers vegna hefir músin meira hitatap en kýrin? — Af því að hún hefir kalt blóð. P R A Hugurinn kemur svo víða við á vegjerð sinni um holt og móa. Hann Jiráir lóusöng, lœkjarnið, litskrúðug blóm, þegar jer að gróa. Hann unir sér hvergi, fœr ckki frið, fyrr en þig hittir, er leyst hefir snjóa. En hugurinn getur þotið til þín, þótt hann ei fái sig gefið til kynna. Eg kem til þín, vina, er dagurinn dvín og dvel hjá þér nœturlangt, huggun að finna, en þegar dagsbrún í austrinu skín, aftur má hverja til dagsstarfa minna. En vormorgunn hrekur burt vetrarins kvöld, víðirinn klœðist laufskrúði nýjum. Gróðurmagn foldar fœr aftur völd, hún jrjóvgast af regni úr gullkembdum skýjum. Og þetta er að gerast hér, öld eftir öld, að ástvinir finnist á vornóttum hlýjum. Stefán Aðalsteinsson.

x

Menntskælingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntskælingur
https://timarit.is/publication/453

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.