Menntskælingur - 01.04.1949, Blaðsíða 19

Menntskælingur - 01.04.1949, Blaðsíða 19
MENNTSKÆLINGUR 19 Fréttir * KAFFIKVÖLD 3. BEKKJAR var lialdið 19. febr. s. 1. á hátíðasal skólans. Margrét Ólafsdóttir setti samkomuna, Gissur Pétursson las upp gamansögu, Guðinundur Samúelsson lék einleik á píanó, Jóhann Konráðsson söngvari söng einsöng; undirleik annaðist As- kell Jónsson og Gylfi Pálsson las upp annál 3. bekkjar. Skemmtiatriðin voru öll hin beztu; sérstaka gleði vakti þó annállinn, enda var liann bæði vel saminn og vel fluttur. Við þetta tækifæri komu út skop- myndir af nokkrum kennurum og nem- endum 3. bekkjar í riti, sem kallaðist Ugluspegill. Eru margar myndirnar prýðilega vel teiknaðar og hinar fyndn- ustu. Mikið fjölmenni var þarna saman- komið, og tókst 3. bekkingum, venju fremur, að forða mönnum frá þeim óþægindum, sem fylgja venjulega borð- haldi í svo miklum þrengslum. * MENNTSKÆLINGUR þakkar öltum, sem stutt hafa blaðið, í vetur, gott sam- starf. Ritstj. ÆRSLADRAUGURINN. Nýlega er lokið sýningum á gamanleiknum Ærsla- draugurinn eftir Noel Coward, sem sett- ur var á svið af Leikfélagi M. A. Leik- urinn var alls sýndur 9 sinnum. Leið- beinandi var Jón Norðfjörð. Leikendur voru þessir: Baldur Hólmgeirsson, 5. bekk M. Rannveig Jónsdóttir, 5. bekk M. Árnína Guðlaugsdóttir, 6. bekk M. Jóhanna Þorgeirsdóttir, 4. bekk S. Hólmfríður Sigurðardóttir, 4. b. M. Þórný Þórarinsdóttir, 5. bekk M. Páll Þór Kristinsson, 6. bekk M. Leikurinn var vel sóttur og hlaut góða dóma í blöðum bæjarins. Eiga leikendur skildar miklar þakkir fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu skólans. * HIN ÁRLEGA SKÓLAHÁTÍÐ M. A. var baldin 28. marz s. 1. að Hótel Norð- urland, og hófst með kaffidrykkju. Þórarinn Björnsson, skólameistari setti samkomuna og bauð menn vel- komna, Eyþór Einarsson flutti minni íslands, Ólafur Sveinsson flutti minni skólans, Örn Friðriksson flutti minni kvenna og Steinunn Bjarman flutti minni karla. Einnig söng skólakórinn nokkur lög undir stjórn Björgvins Guð- mundssonar. Að lokum var dansað. Skemmtunin var mjög fjölsótt og hin ánægjulegasta.

x

Menntskælingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntskælingur
https://timarit.is/publication/453

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.