Gelmir - 01.04.1954, Side 8
Félagslíf M.A.
Ef kveða æ'.ti upp dóm yfir félagslífi skóla vors almennt, er vandi á
höndum. Það hefur ýmsa galla, því miður, marga og stóra, en það er líka
ýmislegl gott um það að segja.
Nú. þegar veturinn er að enda, er ekki úr vegi að gera sér grein fyrir
því, sem betur má fara. og einnig hinu, sem er þess virði að haldið sé við.
Fyrst skal þá ræða örlítið um almennasta félag skólans, „Huginn“.
Fundir hafa verið svipað margir og undanfarin ár, en þeir hafa verið
verr sóttir og varla eins fjörugir. Hvar orsakanna er að leita, er ekki vél
ljóst, en ýmsar raddir eru uppi um það, að of mikið sé um pólitík í skól-
anum. Má vera, að það sé rétt, en svo undarlega bregður við, að þegar
haldnir eru ópólitískir fundir (sem verið hafa 3 af 6 fundum félagsins,
þegar þetta er ritað), mæta engu fleiri, nema síður sé. Og nákvæmlega
sömu mennirnir halda uppi umræðunum á ópólitísku fundunum eins og
þeim pólitísku, og má kallast undantekning, ef nýr maður bætist í ræðu-
mannahópinn á ópólitískum fundi. Og þeir, sem mest tala um útrýmingu
pólitíkurinnar, láta ekki til sín heyra. Af þessum orsökum hlýtur að
teljast vafasamt, að þetta sé eina orsökin, og væri okkur öllum hollt að
íhuga með okkur, hvar bresturinn er, því hann er einhvers staðar, og mætt-
um við gjarnan láta í ljósi skoðanir okkar sem flest, ef að gagni mætti
verða þeim, sem valdir verða félaginu til forstöðu.
hálflokið verk heyrirðu ekki klukkuna slá séx, frekar en þú heyrir skotið
aí fallbyssunni við olnbogann á þér.
Þegar Názisminn kom upp í Þýzkalandi, taldi ég það 6kyldu mína, áð
standa gegn honum, því ég sá að hann gat aðeins léitt til ánaúðar.
Vegna andstöðu minnar lenti ég í SS-fangelsi, þar sem ég og konan mín
liíðuin dapurlegt silfurbrúðkaup. En ég iðrast aldrei afstöðu minnar.
Vitundin Um að hafa gert skyldu mína veitti mér sálarró, sem er dýrmæt-
ari en líkamleg þægindi.
Það er trú mín að í mínu hamingjusama lífi hafi ég verið hamingju-
samastur, þegar ég hef ekki hætt við hálflokið verk heldur unnið verkið til
fullnustu.
(Þýtt úr ensku. Stytt.)
8
GELMIR