Gelmir - 01.04.1954, Síða 9
Málfundafélagið hetur nú hin tvö síðustu ár fært út kvíarnar. Má þar
fýrst nefna, er það gekkst fyrir nemendaskiptum við Reykjavíkurskólann,
og hafa þau nú órðið tvívegis. Er enginn vafi á því, að þetta er hin mesta
lyftistöng fyrir íélagslífið, er að þessu hin mesta tilbreyting og kynning,
ef rétt er á haldið.
Þá hefur félagið stofnað innan sinna vébanda nú í haust bókasafns-
deild, sem skal efla bókakost nemenda, einnig var stofnuð bókmennta-
kvnningadeild, sem h -:fur það markmið að auka og glæða áhuga manna á
íslenzkri tungu og bókmenntum. Að síðustu hefur það sett á stofn tón-
listadeild, sem efli tónlistalíf skólans. Verður því ekki annað sagt, þrátt
fvrir allt, en að málfundafélagið hefur sennilega aldrei, nú um langan
tíma, Verið öflugra og aðsópsmeira en einmitt nú, og er gott til þess að
vita. Leyfi ég mér að þakka þetta a. m. k. að nokkru suðurför nemenda í
fyrravetur.
Annað fjölmennasta félag skólans í. M. A. er sennilega kraftmesta fé-
lagið í skólanum, hefur það haldlð mörg mót og úthlutað mörgum æfinga-
tímum í húsinu, og er gott eitt um það að segja, en hins ber mönnum að
gæta vel, að einn félagsskapur má aldrei yfirtaka allt annað.
Tvær eru þær íþróttir eða menntir, sem virðast í mikilli lægð í skólan-
um nú, en það eru bridge og skák. í miklum erfiðleikum gekk að koma á
hinu árlega bekkjamóti í skák, og þó varð að strika sjöttubekkinga út,
eftir miklar tafir af þcirra völdum, vegna þess að þeir ekki mættu. Má
þeirra skömm lengi uppi og að makleikum öðrum til varnaðar á komandi
árum.
En samt verðum við að athuga eitt, við megum ekki skella allri skuld
fyrir það, sem aflaga fer, á 6. bekkinga, þólt vissulega sé til mests af þeim
ætlandi. Neðri bekkirnir verða einnig að taka á sig sinn þátt og sína
ábyrgð til þess að verða starfi sinu vaxnir, þegar þeir koma í hið gullna
hásæti sjöttubekkinga. Þó situr sízt á 6. bekk áð bregða fæti fyrir aðra í
þeirra störfum, eins óg þarna er gert. Vónir síanda þó til, að skákin sé
fremur á uppleið aftur, a. m. k. er nokkuð mikið teflt í neðri bekkjunum,
og vil ég hvetja þá til þess að halda því áfram.
Bridge hefur varla verið snert, það sem af er vetrinum, og engin keppni
hefir verið háð nú tilsvarandi þeirri, sem háð var í íyrra. Eru það bág
öilög, sem þessi göfuga íþrótt hefir hlotið hér í musteri hinna frjálsu
lista. Virðist þó sem nú hafi menn vaknað við vondan draum, er þeim
barst áskorun starfsmannafélags KEA, og vár þá komið nafni á hina ár-
legu keppni milli kennara og nemenda.
GELMIR
9