Framtíðin - 01.04.1908, Blaðsíða 16

Framtíðin - 01.04.1908, Blaðsíða 16
32. F R A M T ÍÐ I N. þess hvað sterk vínbanns-hreifingin er far- in að verða. Guð gæfi að sú iireifing magnaðist svo, að þær krár yrðu gerjðar landrækar. Það yrði þó landhreinstp! ----o---- FYRIRSPURN. Bandalagið eitt langar til að fá að vita hjá einhverju systur-félaginu, hvaða vegur sé til þess að koma lifi i félag, ef eitthvert uppdráttar óhræsi er komið í það. Að þessu er spurt frá ctlmcnnu sjónarmiði. það verður að skilja spurninguna á þann veg. Það er ekki verið að drótta nenu að veg. Það er ekki verið að drótta neinu að spyr, að það verði fyrir nokkrum grun, þó það i grannleysi spyrji. Það er gott að vita svona hluti fyrir frarn, ef eitthvað ó- happ skyldi koma fyrir. Það eru hyggindi að vera við búinn. Og betri er sóttvörn en lækning. Það er alveg áreiðanlegt. Svo er annað. Ritstjóri Framtíðarinn- ar hefitr ekki heyrt hiö allra minsta til neins bandalagsins — ekki einu sinni tíst. Og þó heyrir hann mæta-vel, þó ekki sé hcyrnin alveg eins góð og hún var hjá Heimdalli gamla. Ef hann ætti eins góð eyru og hann, þá heyrði hann vitanlega margt og mikið gott og gagnlegt, sem á seiði v;eri hjá þeim. En nú eru honum ekki slík eyru sköpuð. Og þurfa bandalögin því að hafa ögn hærra — brýna ofur-lítið bet- ur gogginn. Og til þess nú að hjálpa þeim til að lirýna hann og koma þeim á stað, er kontið meö fyrirspurnina og beðið um svar upp á hana. Það er líka betra að spyrja, þó eitthvað sé að spurningu, heldur en að stein-þegja. Núnú. Vill þá ekki eitthvert bandalagið liafa oröið? Það er ágætt að hugsa sig vel um. En of mikiö má úr öllu gera. Sá, sem ætlar sér að synda, má ckki hugsa sig of vel um. Það er þá hætt viö því, að ekkert veröi úr sundinu. Jæja, hver biöur um orðið? / tilcfni af beiðni um ,að senda blað- stranga til póstafgrciðslumanna, en ekki þeirra, sem áskrifendum hafa safnað, skal skýrt frá því, að póststjórnin leyfir það ekki fyr en hún er búin að gefa leyíi til þess, að senda blaðið eins og hver önnur blöð með pósti. Vonandi verður það bráð- um. Nú kostar undir blaðið sama og undi ' bækur. Svo eru þeir beðnir, sem senda inn pen- inga fyrir fleiri kaupendur í senn, að muna eftir því að skýra frá, hverjir borg-i ------ GAMAN. -- —■-JG= Einn kunningi ritstjórans hvíslaði að honum þessari sögu hérna um daginn: — Kennari biður barn að segja sér, hvað hrœsni sé. Barnið svarar: Að koma hlæj- andi í skólann. Vitanlega fara ekki öll börn með ólund í skóla. Mörgum þykir vænt urn það og koma i skólann brosandi — brosa, af því þeim er það eðlilegt. Hann vissi töluvert. — Maður, sem vildi fá að vita um náunga einn, hvað mikið liann vissi, spurði kunningja sinn: „Veit hann mikið.“ — Kunningi hans svarar: „Hann veit ekki að eins, hvað litið hann veit; en hann veit lika nóg til þess að láta ekkcrt bera á þvi.“ BORGUN fyrir blaðið ern áskrifendur beðnir að senda nú þegar til br. J. A. Blöndal, P.O. Box 136, Winnipeg, Man. UTGEFENDUR BLAÐSINS eru HiÖ ev. lút. kirkju- félag ísl. í Vesturh. (•« hin sameinuðu bandalög. U I GÁí' UNEF ND : Súra N. Steingr. Thorlaksson, ritstj., adr.; Selkirk, Man., Can.; súra Friðrik Hallgríms- son, forseti; hr. Jón A. Blöndal, féhirðir, adr.: P. O. Box 136, Winnipeg, Man,; hr. Hallgrímur Jónsson, skrifari; h 1. Geo. Peterson. — BlaÖiÖ á að borgast fyrirfram. — Arg. hver er 75 cts.» en ef 10 eintök eru send til sama manns og hann sór um útbýting þeirra, þá 65 cts. I’RENTSMIÐJA LÖGBERGS

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.