Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.05.1978, Blaðsíða 1
tAlþýðublað
Hafnarfjarðar
XXXVII 15. MAÍ1978
3. TBL.
Sókn með A-lista
Lárus Guðjónsson var fundarstjóri á fundinum í „Gúttó“, Kjartan Jóhannsson og Vilmundur Gylfason fluttu
þar stuttar framsögur en sátu síðan fyrir svörum ásamt þeim Karli Steinari Guðnasyni og Gunnlaugi Stefánssyni.
Margt var þarna spurt og spjallað og fundarmenn urðu um margt vísari. Á myndinni eru talið frá vinstri: Lárus,
Kjartan, Vilmundur, Karl Steinarog Gunnlaugur. Þá má sjá aftan á og á vangann á Yngva R. Baldvinssyni íþrótta-
fulltrúa.
Nú eru tvennar kosningar
fyrir dyrum, fyrst bcejar
stjórnarkosningar, síðan
alþyngiskosningar.
Fólkið ílandinu er orðið
þreytt á festuleysi og ráð
leysi valdhafanna og það
vill breyta til. Nú er líka
tœkifœri til þess og það
tœkifœri œtla margir að
nota sér til þess að koma
breytingu á málin.
Það hefur ekki farið framhjá
neinum að Alþýðuflokkurinn á
nú meiru fylgi að fagna en oft
áður. Einarðlegur málflutn-
ingur gegn ráðleysi og stjórn-
leysi, spillingu og siðleysi hefur
fundið hljómgrunn hjá al-
menningi. Hér í kjördæminu
hafa verið haldnir allnokkrir
fundir á vegum Alþýðuflokks-
ins. Þeir hafa þótt forvitnilegir
og verið fjölsóttir. Þessir fund-
ir hafa verið boðaðir undir
kjörorðinu: Sókn með A-lista.
Þriðjudaginn 9. maí s.l. var
einn slikur fundur haldinn hér í
Góðtemplarahúsinu í Hafnar-
firði. Fundurinn hófst klukkan
20.30 og sóttu hann á annað
hundrað manns.
Framsöguræður, fyrirspurnir
og umræður voru fjörlegar og
fræðandi og stóðu fram til
klukkan 23.00. Mikill áhugi
kom fram hjá fundarmönnum
á Alþýðuflokknum og málefn-
um þeim, sem hann berst fyrir.
Myndin hér að ofan sýnir
nokkurn hluta af fundinum.
Af fundinum héldu menn
heim, staðráðnir i því að vinna
ötullega að sem mestum sigri
Alþýðuflokksins í komandi
kosningum. Fundurinn undir-
strikaði vissu lega
sókn með A-lista.
Hafnarfjörður
fræðsluumdæmi?
Hinn 3. maí s.I. var sam-
þykkt á Alþingi breyting á
grunnskólalögunum þar
sem menntamálaráðherra er
heimilað að stofna sérstakt
fræðsluumdæmi í sveitarfé-
lagi með 10 þúsund íbúum
eða fleiri, ef sveitarstjórn
óskar þess og fjárveiting er
fyrir hendi.
Frumvarp þetta var flutt
að beiðni bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar og mætti
mjög mikilli andstöðu
menntamálaráðherra. Fjár-
málaráðherra beitti sér hins
vegar mjög fyrir málinu,
enda þótt hann að vísu
geymdi enga fjárhæð á fjár-
lögum til þess að stuðla að
því og flýta fyrir að Hafnar-
fjörður verði sérstakt
fræðsluumdæmi.
Nú kemur til kasta Teits
og Siggu. Sækja Hafnfirð-
ingar um að Hafnarfjörður
verði sérstakt fræðsluum-
dæmi? Ef það gerist, veitir
þá Vilhjálmur menntamála-
ráðherra leyfið þvert ofan í
skoðanir sínar? Eða bregð-
ur hann kannski fyrir sig
Matthíasi fjármálaráðherra
með tóman ríkiskassann og
enga fjárveitingu til
fræðsluumdæmis í Hafnar-
firði og segir:
„Því miður herrar mínir
og frúr. Fjárveiting fyrir-
finnst ekki. Fjármálaráð-
herra hefur enga aura til að
láta í fræðsluumdæmi
Hafnarfjarðar. Þess vegna
leyfa lögin mér ekki að
verða við þessari bón og
gera Hafnarfjörð að sér-
stöku fræðsluumdæmi“?
XA
Hverfisfundir með ráðamönnum bæjarins.
Lifandi samband bæjarstjórnar og bæjarbúa,
valdadreifing og aukið lýðræði
O