Kirkjublað - 01.11.1933, Síða 5
KIRKJUBLAÐ
1. árg.
Miðvikudaginn 1. nóv. 1933.
1. tbl.
Kirkjublað.
Á tveim siðustu aðalfundum Prestafélagsins og
deildafundum hafa komið fram eindregnar óskir um það,
að kirkjublað verði gefið út. Var stefna blaðsins mörk-
uð svo á aðalfundinum 1932, að það slcyldi fyrst og fremst
vera uppbyggilegs eðlis, forðast trfifræðilegar flokkadeil-
ur, en flytja greinar fræðandi og vekjandi um andleg mál
og fregnir um störf presta og safnaða landsins og um hið
merkasta, er gerist. í þeim efnum erlendis. Á fundi þessum
var kosin nefnd til að vinna að undirbúningi útgáfunnar
og væntanlegri útbreiðslu blaðsins, og skipa þeir nú nefnd-
ina séra Bjarni Jónsson prófastur í Reykjavik, séra Eiríkur
Albertsson prófastur á Hesti, séra EiríJcur Brynjólfsson á
Útskálmn, séra Friðrik Rafnar á Akureyri, séra Guðbrand-
ur Bjömsson í Viðvík, séra Halldór Kolbeins á Stað í Súg-
andafirði, séra Hálfdán Helgason á Mosfelli, séra Jakob
Jónsson á Nesi í Norðfirði, séra Óskar Þorláksson á Kirkju-
bæjarklaustri, séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum,
séra Sigurgeir Sigurðsson prófastur á ísafirði og séra
Sveinbjöm Högnason á Breiðabólsstað. Við undirritaðir
höfum svo eftir beiðni nefndarinnar telcið að okkur að sjá
um útgáfu blaðsins, og liöfum við í samráði við stjórn
Prestafélagsins ráJðið séra Knút Arngrímsson til þess að
annast ritstjóm þess og afgreiðslu þar sem enginn olckar
gat bætt ritstjóminni ofan á þau störf, sem fyrir eru.
Við höfum valið blaðinu heitið KIRKJVBLAÐ, i þvi
trausti, að það megi verða í raun og veru málgagn kirkj-
unnar hér á landi og styrki starf hennar með því að flytja