Kirkjublað - 01.11.1933, Blaðsíða 14
10
KIRKJUBLAÐ
þeir gera þá kröfu til allra, að trú þeirra starfi í kærleika
og nái til alls í lífi þeirra. Til þess þurfa menn að gefast
Kristi af öllu hjarta og hafa hann í öllu að leiðtoga lífs;
síns. En slíkt er ekki unnt, segja þeir, meðan syndin fjar-
lægir menn Guði og er því til fyrirstöðu, að þeir geti
öðlazt kraftinn frá hæðum. Þess vegna ríður á þvi, að játa
syndir sínar fyrir Guði og einnig fyrir mönnum og bæta
eftir megni fyrir allt það, sem öðrum hefir verið rangt
gert. En synd er allt það, segja þeir, sem skilur menn frá
Guði og fjarlægir þá mönnum eða myndar djúp milli
manna. Slíkt djúp hverfur, þegar menn játa fyrir öðrum
brot sín og bresti og bæta fyrir þau með aðstoð Guðs
anda. Minna telja þessir menn vert um ólíkan skilning á
trúarsannindum kristindómsiris, og hvetja því hvern og
einn til að vera í því-kirkjufélagi, sem honum gezt bezt
að, í samræmi við uppeldi hans og trúarreynslu.
Það er áhrifaríkt að lesa bækur um þessa nýju trúar-
hreyfingu. Merkastar bóka þeirra, er um hana hafa verið
ritaðar á ensku, eru »Life-Changers« eftir Harold Begbie
(þýdd á dönsku: »Forvandlede Mennesker«), »For sinners
only« eftir A. J. Russell (þýdd á dönsku: »Kun for Syn-
dere«), og eftir sama höfund: »One thing I know«, er
kom út í júlí í sumar. Fyrnefnda bókin eftir Russell kom
fyrst út í júlí 1932, en var í júlí í sumar komin út í 14
útgáfum og höfðu þá selzt um 120 þúsund eintök af ensku
útgáfunni, auk þýðinga á ýmsum málum.
Trúarhreyíing þessi hefir nú náð til margra landa og
fest rætur í öllum álfum heims. Sumarið 1933 komu full-
trúar hreyfingarinnar saman í Oxford á Englandi, alls um
5 þúsund manns. Voru þeir frá flestum löndum í Evrópu,
en einnig frá Ástralíu, Indlandi, Tyrklandi, Egiptalandi,
Kína, Suður-Afríku og Ameríku. Menn af öllum stéttum
þjóðfélagsins voru meðal fundarmanna, en flest var þó af
ungum menntamönnum háskólagengnum.
Landar vorir í Ameríku hafa haft tækifæri til að kynn-
ast hreyfingu þessari og er á hana minnzt í nýkomnu sept-
emberblaði »Sameiningarinnar«. Þar stendur: »Svo virðist