Kirkjublað - 01.11.1933, Blaðsíða 15
KIRKJUBLAÐ
11
sem áhrif hreyfingar þessarar hafi orðið mjög víðtæk i
Canada; frá hafi til hafs eru smáhópar að starfi innan
mismunandi mótmælenda kirkna, og vænlegir til mikillar
blessunar og endurnýjaðs trúarlífs. Margir prestar hafa
orðið fyrir mikilli blessun af hreyfingunni og viðurkenna
það fúslega; ný tilfinning um nálægð Guðs, ný löngun til
þess að öðlast fullkomnara trúarlíf hreyfir sér i hjörtum
karla og kvenna víðsvegar í kristilegri kirkju — og and-
Iega kreppan innan kirkjunnar fer þverrandi. Andi Guðs
svífur yfir vötnunum og veitir nýtt líf.«
Vonandi gefst síðar tækifæri til að skýra nánar frá
hreyfingu þessari í blaði voru.
Hér skal að lokum aðeins lögð áherzla á þetta:
Ef ekkert af krafti frá hæðum birtist í Iífi einhvers
manns, sem telur sig trúaðan, má hann vera viss um, að
trúarlif hans er sjúkt á einhvern hátt.
Ef trúin hvorki reynist styrkur til að bera byrðar lífs-
ins, né hjálp á betrunarbraut mannsins, né máttur til góðra
afskifta af öðrum — þá er hún sjúk eða veikluð.
Heilbrigð trú gerir manninn »hljóðan fyrir Drottni«,
svo að hann geti orðið farvegur kraftarins frá hæðum og
á þann hátt samverkamaður Guðs i þjónustu hins góða.
Sigurður P. Sivertsen.
Fréttir.
Oxford-hreyfingin nýja,
sem getið er um hér að framan í grein prófessors Sigurðar
P. Sívertsen, vekur stórmikla athygli um þessar mundir. Síðustu
mánuði hefir fjöldi manna undir forustu dr. Frank Buchmans unnið
að því að vekja íbúa Lundúnaborgar til kristilegs lifs. í þeim til-
gangi hafa þeir haldið guðsþjónustur og útbreiðslu-samkomur viðs-
vegar um borgina, sem þúsundir manna hafa tekið þátt í. Auk
þess vinna »hermenn« (campaigners) hreyfingarinnar að því að vekja
kristinn hugsunarhátt lijá einstaklingunum með einkaviðtölum. Hafa
þeir tilkynnt, að þeir taki á móti fólki til viðtals víðsvegar um borg-
ina á þekktustu gistihúsunum. Enska blaðið Daily Mail hefir eftir-
farandi orð eftir einum þeirra: »Vér búumst við þvi, að barátta vor
í framtíðinni verði einkum i því fólgin að snúa oss til einstakra