Kirkjublað - 01.11.1933, Blaðsíða 9

Kirkjublað - 01.11.1933, Blaðsíða 9
KIRKJUBLAÐ 5 Þessu hefir fylgismönnum Lúthers á öllum timum hætt til að gleyma og með því hafa þeir einatt unnið kenningu hans margvíslegt tjón. Heilsteypt kenningarkerfi hefir Lút- her aldrei eftir sig látið, og þvi hafa menn einatt tekið hann »sér til inntektar«, þar setn sízt skyldi, t. d. með því að vilja binda sig og aðra við hitt og þetta, sém hrotið hefir úr penna hans við ýmis tækifæri, þótt ekki skifti neinu verulegu máli fyrir heildarskoðun hans og Lúther sjálfur hefir sízt ætlazt til, að menn bindu sig við. Hvað er það þá, sem veldur þvi, að Lúther hefir orð- ið sá öndvegishöldur þeirra alda, sem liðnar eru frá því, er hann var uppi, sem öllum kemur saman um, að hann geti með réttu talizt? Ekki sem lærdómsmaður, ekki heldur sem rithöfundur hefir Lúther velli haldið fram á þennan dag, heldur fyrst og fremst sem spámaður í þessa orðs réttu merkingu. Spámannlegt eðli hans er ráðningin á leyndardómi per- sónuleika hans. Því að hér er um leyndardóm að ræða. Við það hljóta allir að kannast, sem kynnast Lúther eins og hann birtist ekki aðeins i athafnarlífi sínu, heldur einnig í ritum sínum. Hann er ekki eins og fólk flest. Þetta hafa jafnvel svæsnustu óvinir hans orðið að kannast við. Og sumir hafa þá líka gripið til þess óyndisúrræðis, að vilja ráða leyndardóm persónuleika hans með því að bera honum á brýn, að hann »hefði illan anda«. Þannig kemst Grisar kristmunkur að þeirri niðurstöðu um Lúther, i miklu þriggja binda riti um hann, að hann hafi verið »villuandi afvega- leiddur af djöflinum, heiminum og holdi sínu«. Og þó er Lúther það mikilmenni andans í augum þessa stórlærða mótstöðumanns síns, að hann neyðist til að bera hann saman við hina viðurkenndu kennifeður kirkju sinnar! Annan mælikvarða kemur honum aldrei til hugar að leggja á Lúther! En jafnvel ekki sá mælikvarði hefir nægt hér. Leyndardómur persónuleika Lúthers hefir reynzt of djúpur eða of hár. Andstæðurnar í skapgerð hans eru þá líka «inatt svo átakanlegar, að undrum sætir. »Hann er hvort- *veggia í senn, draumlífur spekingur og skörungur til at-

x

Kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.