Kirkjublað - 01.11.1933, Qupperneq 11
KIRKJUBLAÐ
7
og menn á öllum tímum munu dást að og leita til með-
trúarþörf sína og hljóta þá svölun hjá, sem flestum öðr-
um er um megn að láta í té. Að þessu leyti mun Lúther
lifa áfram í fremstu röð andans stórmenna og ekkert fá
dregið dimmu á líf hans og persónuleika fremur en hing-
að til. Dr. J. H.
Kraftur frá hæðum.
Æðsta mark og mið kristindómsins er að opna mönn-
um aðgang að guðlegum mætti. Fagnaðarerindi Krists er
ekki aðeins opinberun kærleikseðlis Guðs og fræðsla um
takmark mannsins og siðferðilega breytni, heldur öllu öðru
fremur kraftur, sem birzt hefir í mannlegu lífi.
Dásamlegast birtist þessi kraftur frá hæðum í lifi Jesú
Krists sjálfs. Lýsingar guðspjallanna bera allar vott um
þann mikla og undursamlega mátt, sem einkenndi alla
framkomu hans og líferni, hvort sem litið er til kenningar
hans, kraftaverka hans eða pínu hans og dauða. Allt líf
hans var opinberun gæzku Guðs og máttar, opinberun
þess, að faðirinn himneski væri i honum og hann í föð-
urnum. Guðspjöll vor lýsa þessu með því að segja, að
»kraftur Drottins« hafi verið með honum. Og Postulasag-
an skýrir frá þeim ummælum Péturs postula, að »Guð
smurði hann heilögum anda og krafti«.
Allir, sem Nýja-testamentið hafa lesið, vita, að Jesús
gaf Iærisveinum sínum fyrirheiti um þennan sama kraft.
Hann heitir þeim aðstoð frá hæðum eftir að hann sé frá
þeím farinn. Frá því er skýrt í niðurlagsorðum Matteusar-'
guðspjalls, i síðasta kapítula Lúkasar, í skilnaðarræðum
Jóhannesar og í upphafi Postulasögunnar. í Lúkasi eru
ummælin þessi: »Og sjá, ég sendi fyrirheit föður míns yfir
yður; og þér skuluð vera kyrrir í borginni, unz þér íldœd-
izt krafti frá hœðum.«.
Fyrstu lærisveinar Krists voru ekki í neinum vafa um„