Ljósvakinn - 01.11.1925, Page 1
Skilningur og trú.
»Gn í þvi er hiö eilffa lif fólgið, að
þeir þekki þig, hinn eina sanna Guö,
og þann sem þú sendir, Jesúm Krist.
Jóh. 17, 3.
Á vorum timum eru margir, sem
standa í þeirri meiningu að vjer byggj-
um þekkingu vora á mannseðlinu og
afstöðu hans til Guðs, á skynsemi og
skilningi. En slíkur grundvöllur mun
aldrei reynast traustur. Trúin er sá
grundvöllur, sem allur rjettur skilning-
ur í þessum efnum byggist á. Rjett
þekking á Guði er grundvöllur þess,
sem kallast getur sönn lífsspeki. Sjer-
hver maður hefir einhverskonar skilning
á lífinu — sambandinu milli hins
lfkamlega og hins andlega.
Þar eð Guð er þungamiðja allra and-
legra sanninda, verður þekkingin á eðli
hans grundvöllur allra eilffra sanninda.
Rangur skilningur á Guði leiðir út
L
á allskonar villubrautir, sem liggja
niður á við og út i ógæfuna. Biblian
kennir, að Guð sje persóna, skapari
allra hluta. Það er ekki einungis að
hann sje sá, sem skapað hefir efnisbeim-
inn; heldur hefir hann gjört alla hluti
sýnilega og ósýnilega. Kól. 1, 16. Öll
vor þekking og allur vor lærdómur
hvort það er heimspeki, visindi eða
hvaða nöfnum sem það nefnist, hefir
upptök sin í þessu, að Guð hefir skapað
alt og viðheldur öllu.
Ef vjer eigum að geta öðlast sanna
þekkingu og sannan skilning, verðum
vjer að byrja á því, sem er undirstöðu-
steinn allra sanninda og hann finnum
vjer í Hebr. 11, 6. »Sá, sem gengur
fram fyrir Guð, verður að trúa þvi, að
hann sje til«. Trúin er sá grundvöllur,
sem allur sannur skilningur byggist á.
Sumum kann að finnast, að það sje
helst til of mikiö sagt með þessu; en
það er ekki meira en Heilög ritning
segir, og hvergi i öllu Guðs orði eru