Ljósvakinn - 01.11.1927, Blaðsíða 13

Ljósvakinn - 01.11.1927, Blaðsíða 13
LJÓSVAKINN 61 andi manns fyllist ótta. T. d. þegar hann hugsar um það, að Ítalía hugsar sér að hafa standandi her, sem nemi 5 miljón- um næstu fimm ár og að Bandaríkin í Norður-Ameríku ælla sér að auka her- varnir sínar með 1000 loflskipum næstu árum. Hlutfallslega mætli telja upp hjá flestum löndum heimsins. Það fer ekki hjá þvi að þvílíkar fregnir skapa óróa í hugum manna og verka niðurdrepandi á einstaklingana. Meðan þessar menningar- þjóðir eru að hervæðast, er Kína að gagnbreytast frá því sem var fyrir nokkr- um áratugum. Ný þjóð er að fæðast — nýtt Kína, er að að koma á sjónarsviðið — þjóð, sem allir verða að taka tillit til. Kína hefir tekið stórkostlegum framför- um á síðari árum — og einkum hafa framfarirnar verið örlaga-þrungnar sið- an 1918. Hinn guli kynflokkur hefir ekki gleymt hvernig hvítu þjóðirnar hafa undirokað þá. Opíumsstríðið milli Kína og Englands er ritað með blóðugum stöf- um í sögu Kinverja og hið bælda hatur, vegna þess að Kínverjum var þröngvað til þess að taka á móti ópíum-eitrinu, blossar nú upp og hrópar á hefnd. Bókin, sem allur fjöldinn hefir lagt á hylluna og hefir að eins til málamynda í hyllum sínum talar meðal annars greini- lega um það að hinar austrænu þjóðir munu vakna — Biblían talar um konung- ana frá sólaruppkomustað, að dag nokk- Kinverjar hafa hriðskotabyssur. Kinverskir hermenn. urn muni þeir rétla sínum vestrænu félög- um höndina, ekki i vináttuskyni, heldur til þess að þakka þeim fyrir siðast með hræðilegu blóðbaði. Þess verður ekki langt að bíða að Kína standi tilbúin með heri, sem nemi tugum miljóna — og með ný- tísku morðvélum, sem núlima-vísindin leggja svo mikinn skerf til að framleiða. Þegar Kína hefir komið öflugri stjórn á hjá sér, mega hin ríki heimsins bera virð- ingu fyrir þeim fjölda hermanna, sem það gæti sent frá sér vestur á bóginn. Hvað ætli það hafi nú að þýða að vera grufla út i þetta, hugsar margur. Kæru vinir! Hafið þið ekki hugsað út í það, að allar þessar byltingar og undiibúningur undir strið — talar skýrt mál — og varar okkur með greinilegum áherslum við því að við þurfum að vera reiðubúnir að mæta slíku — þessari bylgju, sem veltir sér þá og þegar yfir löndin, með öllum sinum hræðilegum afleiðingum. Takið eftir að alt þetta bendir ykkur á að þið gerist tilbúin að mæta. Mæta hverju? Getur maður annað en beðið átekta? Það er meira og alvarlegra á ferðum en það að stærsta heimsstyrjöldin er í aðsigi: Hið illa í heiminum er að gera síð- ustu tilraunina til að afvegaleiða og eyði- leggja mannkynið. Verk syndarinnar er bráð- um á enda. Þetta alt er forboði morgunsins, sem bráðum rennur upp þeim, sem vænta Drottins sins og Frelsara komandi í skýjum himins. Vænta konungs konunganna, sem mun binda enda á allar þessar djöfullegu

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.