Ljósvakinn - 01.11.1927, Qupperneq 16
84
LJÓSVAKINN
Hin dásamlegu verk GuÖs.
Menn geta neitað tilveru Guðs og gert
grin að þeirri hugmynd að eilífur Guð sé
til, en þeir geta ekki neitað verkum hans
eða neitað tilveru náttúrulögmálsins, sem
hann hefir lagt inn i verk sín, skaparinn
allra liluta.
Náttúrunni er stjórnað af vissum lögum
og tilvera vor er einnig komin undir hlýðni
við þau, sem umkringja oss á allar hliðar.
Við sjáum þau hvar sem við lítum með
eftirtekt.
Losni epli af trénu svífur það ekki í
loftinu né kastast út i himingeiminn. Það
fellur lil jarðar. I’að er lögmál náttúrunn-
ar, sem hér ræður. Menn kalla þetta
þyngdarlögmál. Það er hinn voldugi að-
dráttarkraftur, sem vísindin geta ekki út-
skýrt fullkomlega, og sem nær með áhrif-
um sínum út yfir það nærliggjandi og
sýnilega — það er sami krafturinn, sem
heldur jörðinni á braut sinni kringum sól-
ina. Án þessa kraftar yrði alt ein ringul-
reið, sem endaði í eyðingu hnattanna í
himingeimnum. En þetta sem menn kalla
þyngdarlögmál er að eins annað orðatil-
tæki yfir kraft Guðs, sem talað er um f
orði hans. f*að er ekki hin lága náttúra,
sem hefir þenna krafl í sér, er kemur fram
sem lögmál fyrir sjónum vorum, heldur
gengur þessi kraftur út frá Guði, er heldur
öllu í skefjum með orði máttar síns, og
fyllir alt í tilverunni hvert eftir sinni tegund.
Hveitiplantan framleiðir ekki kartöflur,
og kornplanta framleiðir ekki epli. Sérhver
jurt framleiðir sæði eftir sinni eigin teg-
und, því það er samkvæmt náttúrulögmál-
inu, sem Drottinn lagði inn í jurtirnar
þegar hann sagði: Láti jörðin af sér spretta
græn grös, sáðjurtir og aldintré, sem hvert
beri ávöxt eftir sinni tegund með sæði i á
jörðinni. (1. Mós. 1, 11.).
Kraftur þess orðs, sem talað var fyrir
6000 árum opinberast enn þann dag í dag.
Það orð mun áfram vera að starfi, og öll
náttúran mun hlýða því. Það er líka kraft-
ur i orði Guðs til þess að umbreyta eðli
og lifi manna. Pegar þetta orð er gróður-
sett f hjörtunum mun það framleiða ávöxt
eftir sinni tegund. Það framleiðir ávexti,
sem eru af anda Guðs.
Það er dásamlegt að taka eftir þeirri
breytingu, sem kraftur þessa orðs kemur
til leiðar, í hjörtum mannanna. Ef við
gróðursetjum orð sannleikans mun ávöxtur
fagnaðarboðskaparins koma í ljós f allri
sinni fegurð. Drykkjumaðurinn tekur breyt-
ingu frá þvf sem hann var og verður reglu-
maður. Ræninginn og þjófurinn taka og
breytingu og bætta við fyrra liferni sitt.
Hinn hranalegi og ókurteisi verður þolin-
móður og mildur, og hinn forherti snýst
til þess að viðurkenna Guð, og alisstaðar
koma sömu áhrif f ljós. Þar sem Guðs
orð festir rætur, breylist jafnvel hinn svarti
heiðingi eftir mynd Krists. Heiðinginn, sem
er orðinn viltur i hjátrú og hleypidómum
verður að sönnum kristnum manni. Breyt-
ingin verður svo gagn ger að jafnvel and-
litssvipurinn breytist. Guðs barn er á öll-
um sviðum öðru vfsi en heimsmaðurinn.