Ljósvakinn - 01.11.1927, Síða 20
Heil vert þú, sem nýtur náðar Guðs! Drott-
inn sé með þér. . . . Vertu óhrædd, María, því
að þú hefir fundið náð hjá Guði. Og sjá, þú
munt þunguð verða og fæða son; og þú skalt
láta haun heita Jesúm. tiann mun verða mikill
og verða kallaður sonur hins hæsta; og Drott-
inn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður
hans, og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að ei-
lífu, og á ríki hans mun enginn endir verða.
Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mik-
inn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því
að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur
Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til matks:
Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í
jötu. . . . Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á
jörðu með þeim mönnum, sem hann hefir vel-
þóknun á.
... ' í
C30C30
Og þeir (vitringarnir) gengu inn í húsið og
sáu barnið ásamt Maríu móðir þess, og féllu fra'm
og veittu því lotning. Og þeir opnuðu fjárhirsíur
sínar og færðu því gjafir: gull revkelsi og myrru.