Ljósvakinn - 01.08.1928, Qupperneq 8

Ljósvakinn - 01.08.1928, Qupperneq 8
30 LJÓSVAKINN guðdómlega fræ sannleikans í hjörtum þeirra. Allir þessir kristniboðar, hverrar stöðu sem þeir eru, haía hið sama hlut- verk, sem er að vinna að því að hinn frelsandi kraftur fagnaðarboðskapar Krists megi framkvæma verk silt í hjörtum mann- anna hvarvetna. Ungir menn og konur eru fúsir til að fara. Útvalning og embættisskipun þessara ungu manna til kristniboðsstaifseminnar i fjarlægum löndum er sérstaklega skemti- legt hlutverk. Áhuginn sem kemur í ijós hjá þeim, er kallið kemur til þeirra, og fúsleika þeirra að ganga út í starfið sýnir svo að undrun vekur og sérstaka athygli, hversu þeir eru gagnteknir af óeigingjörn- um kristilegum anda. Hin árlega útsending slíks fjölda kristniboða og kostnaðurinn sem skiftir milj. króna við að halda uppi þessum kristniboðsfyrirtækjum gerir nýja kröfu til meðlima vorra og vina í heima- löndunum. Hin árlega innsöfnun vor í þetta sinn er hafin með bænum vorum um, að Guðs andi megi þannig skýra hin dýrðlegu tækifæri sem nú gefast hjörtum þeirra, sem lesa þessi hróp, að hjálp þeirra þetta árið verði enn meiri en áður og þannig styðja að því, að hið mikla verk fagnaðarboðskaparins komist út til fleiii af hinum dimmu svæðum jarðarinnar. C. K. Meyers. Heiðnum guðum er hafnað. Indland þarfnast Krists, hann einn gelur læknað böl þess og fullnægt þörf sálarinnar. Hér er það, að kristindómurinn opinberast í krafti sínum. Hinir blindu fá sjón, mál- haltir mæla og fátækum er boðað fagnaðarerindið. Hinir fyrri lifn- aðarhættir eru að hverfa, hjálpin liggur að kalla má í loftinu, og vér sjáum móta fyrir nýju lífl. Vakanankodu er að eins eitt af 700 þús. sveita- héruðum er finn- ast á Indlandi. Hindurvitnatrúin hélt fólk- inu hér föstu í miskunarlausum fjötrum. Vér byrjuðum vort fyrsta starf hér með því, að setja á stofn kvöldskóla, og vér höfum þegar séð launin fyrir starf vort. Gömlum hjáguðum og siðvenjum er hafnað. í þessu béraði er bróðir Meyyalaga að nafni, hann hefir tilbeðið alla þá guð- dóma er finnast í siðakerfi Hindúa, hundrað þúsund að tölu, en hans hungr- aða og þyrsta sál fékk þar enga hugsvölun; þorsti hans var sem söngvarans í ís- rael, eflir hinum sanna og lifanda Guði, og í dag fylgir hann og fjölskyldan fagn- aðarerindi Jesú Krists. Vinir, í Ind- landi eru miljón- ir og aftur miljónir af slíkum; þá þyrstir eftir hinum lifandi Guði, jafnvel þó þeir ekki til fulls séu þess miðvitandi. Hvað eigum vér að gera? Eigum vér að leiða þá til hinnar sönnu lífslindar, eða eigum vér að láta þá þyrsta framvegis og deyja úr þorsta? »Oss langar til að sjá Jesúnm.

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.