Ljósvakinn - 01.08.1928, Blaðsíða 13

Ljósvakinn - 01.08.1928, Blaðsíða 13
35 LJÓSV.AKÍNN kastali kaþólskunnar, landið helga hefir að geyma ýmislegt, sem kristnir menn líta til sameiginlega og í Arabíu finnum við hina múhameðisku helgidóma í Mekka og Medína. Hingað til hefir lítið verið gert að því að starfa að trúboði meðal hinna mörgu miljóna, sem taldar eru múhameðstrúar. Og starfið má beita að eins að byrja í Afríku meðal heiðingjanna þar. Allstaðar eru manneskjur, sem vanta þekkinguna á Guði, sitja í skugga dauðans og vita ekki hvert þær eiga að snúa sér til þess að fá hjálp. í Afriku og Persíu getur maður ferðast svo dögum skiftir án þess að hægt sé að finna nokkurn kristinn trúboða inn- lendan eða útlendan. Pessi stóru svæöi, sem vanta slíka hjálp sitja í andlegu myrkri og innbyggjarnir kalla: Komið yfir . . . og hjálpið okkur. Sannarleg þörf. Pegar maður heimsækir þessi svæði finn- ur maður til vegna þess sorglega ástands sem þar rikir. Hin framúrskarandi mikla vanþekking, talar hinu skýra máli, að skóla þurfi að setja á slofn til þess að fólkið fái uppfræðslu um hinn rétta veg til Jesú, sem er ljós heimsins og upplýsir hvern þann sem kemur til hans. Líkam- leg eymd, sem er afleiðing ýmissra sjúk- dóma og ekki síst aíleiðing af starfi galdra- manna og töfralækna talar til manns að hér þurfi læknatrúboðið að koma til skjal- anna. Hið sorglega ástand andlega meðal heiðingjanna, sem tilbiðja hjáguði í ýmsum myndum og eru haldnir illum öndum — og sem er eins sorglegt — sýna opinber- lega vantrú og guðsafneitun, minnir menn á að hér vanta menn og konur, sem brenna af áhuga í því að frelsa aðra frá valdi hins illa og sýna þeim kærleika Krists. Þetta alt tilheyrir kröfum tímans. Og þýðingarmiklar spurningar vakna hjá manni: Hvernig afstöðu á eg að taka gagnvart þessum staðreyndum? Hvað ber oss að gera, sem lifum undir svo miklu betri kringumstæðum, og sfm eigum kost á að tileinka oss öll þau gæði og forrélt- indi, sem fagnaðarerindi Krists hefir að bjóða? Hvað eigum við að gera? W. E. R. Hverju eigum vér að svara? í norðurhluta Mið-Afríku, í Perú og öðr- um nærliggjandi löndum Austurlanda getur maður ferðast dag eftir dag, fram hjá hverju þorpinu á fætur öðru, án þess að verða var við einn einasta krislinn trúboða, hvorki evrópiskan né innfæddan. Hugsaðu þér hin stóru umdæmi — gríðarstóru svæði, sem enn hafa farið á mis við kristileg áhrifl Fólkið lifir í myrkri og vanþekkingu og það kallar á oss og biður að vísa sér á veg- inn til frelsis. Fyrir stuttu síðan kom höfðingi einn til kristniboðsstöð var vorrar frá héraði, sem lá mörg hundruð kílómelra burtu þaðan og sárbað um kennara, sem gæli uppfrælt fólk hans. Kristniboöinn hafði engan kennara til að senda. Pað var álakanlegt að sjá þennan aldraða höfð- ingja snúa til baka, hryggan í huga með vonir sínar niðurbrotnar. í Abessiniu eru yfir 10 þús. persónur, sem nýlega hafa sagt skilið við Múhameðs- trúna og þreifa sig nú áfram til Ijóssins. Til þess að nota spádóminn forna: Peir teygja bókstaflega sagt út hendurnar eftir Guði. í þessum löndum eru akrarnir hvít- ir til uppskeru, og hin dýrmætu bundin eru tilbúin til samansöfnunar, en það er enginn til þess að vinna að uppskerunni. Peir sárbiðja oss um starfsmenn. Hverju eigum vér að svara? W. E. Read. kristniboðsritari.

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.