Ljósvakinn - 01.08.1928, Qupperneq 15

Ljósvakinn - 01.08.1928, Qupperneq 15
LJÓSVAKINN 37 göngu þeirra, og gegnum óhljóð Indíánanna heyrðist hlátur hinna kaþólsku presta. Undir öllum þessum kringumstæðum og meðhöndlun, gleymdum við ekki að leita Guðs, og við vorum reiðubúin að ganga í dauðann fyrir hans mikla nafn, ef hann leyfði það. Eg skrifaði í flýti nokkrar línur til kristniboða vorra og barna er voru á kristniboðsstöðinni og hvatti þá til að halda starfinu áfram; konan mín bað til Drottins og huggaði tvær indverskar koc- ur er hjá oss voru í húsinu, hinir þrír, ungu innfæddu fylgdarmenn vorir, hraustir og trúfastir, voru mjög hryggir vor vegna. Með miklum erfiðleikum gat eg hindrað Luciano frá því að hlaupa út í fjöldann og verja oss. Hefði hann gert það, þá hefði hann verið rifinn sundur í smá slykki. Prestarnir hrópuðu nú til Indiánanna og skipuðu þeim að leggja eld í húsþakið er var úr strái. Á svipstundu komu nokkr- ir með eldblys, til að hlýða þeirri fyrirskip- un er gefin var, og einn Indíániun klifr- aði upp grjólhrúgu og lagði blys sitt að þakinu, en á sama augnabliki hljóp indí- ánakonan, er átti húsið, eflir mannin- um, kastaði honum niður og reif hin brendu strá af þakinu, en á sama augnabliki og henni hepnaðist að rífa burt það síðasta af þeim stráum, er eldurinn hafði læst sig eftir, féll hún niður; eldurinn hafði fallið á andlit hennar og hún brendist mjög al- varlega, en þetta varö til þess að hún gat sfðar komið fram sem þýðingarmikið vitni. Strax gerðu Indíánarnir aftur tilraun með blysum sfnum, að kveikja f húsinu, og nú mistum við alla von um hjálp, en á þessu sama augnabliki flúði allur skar- inn frá húsinu, prestarnir og alt þeirra lið. Við gengum út úr húsinu á þeim tíma er prestarnir stigu á bak hestum sínum og flúðu þeir niður dalinn með skrílshópinn á eftir sér. Við spurðum Indfána er stóð skamt frá oss, og oss virtist mjög hræddur, hvers vegna þessir menn hefðu flúið svo skyndi- lega. Hannsvaraði: »Sáuð þér ekki hinn mikla skara Indíána er komu með al- væpni að húsinu yðar til hjálpar?« Eg sá þá ekki, og spurði konu mína, hvort hún sæi þá, hún sagði »nei«. En Indíáninn full- vissaði oss um, að þar væri Indfána-fylking er héldi vörð um húsið. Nú vitum við, að Guð hefir sent engla sina á þennan hátt oss til hjálpar, það er eng- in önnur fullnægjandi úr- lausn er hægt er að gefa viðkomandi þvf, er hér hefir skeð. »Drottinn er undursamlegur f ráðum og mikill i vis- dómi«. Á ferðum sfnum um Norðurlöndin, hafði Stahl kristniboði og kona hans með sér indíánastúlku frá Amazonhéraðinu, 16 ára gamla; hún er endurfædd og vitnar með gleði og hugrekki um trú sina á Jesúm Krist. Að eins einn Iæknir meðal þúsunda Indíána. Þegar Indíáni snýst til aflurhvarfs, þá verður hann f sannleika kristinn, góður vinur og trúfastur bróðir, eftir að lírists umbreytandi kraftur hefir þrengt sér að hjarta hans. Hann elskar þann er í óeigin- gjörnum tilgangi vinnur að velferð hans; af þessari ástæðu nær læknastarfsemin meðal þeirra gleðilegum árangri. Það var ásamt fimm kristniboðum er hér voru á ferðalagi, að eg hafði tækifæri að heimsækja Iudiána kristniboðsstöð. Við höfðum ekki gert kunna komu okkar, en löngu áður en við höfðum náð áfanga- stað vorum, sáum við svo hundruðum skifti Indiánamœvin Cahve.

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.