Ljósvakinn - 01.11.1928, Side 4

Ljósvakinn - 01.11.1928, Side 4
54 LJÓSVAKINN i kring meðal þjóðarinnar og gjörði sín dásamlegu kraftaverk. t*eir, sem voru vitrir að eigin áliti sáu ekkert í þessu óvanalegt, nema vera skyldi aö Hann væri haldinn af djöflinum. Aftur á móti var margt af ólærðu fólki, sem vildi hlusta á kenningu hans, en það var litilsvirt fyrir vikið og meira segja útilokað úr samkundunum vegna þess. En hvaða þýðingu hefir að rifja þetta npp? Getur verið að þetta endurtakist? Veiztu að Hann hefir sagt fyrir og spáð um tákn, sem eru leiðarvísir, og þau eru svo glögg, að varla er hægt að loka aug- unum fyrir þeim? Á þeim dögum — fyrir 1900 árum síðan — vissu allir að eitthvað •mundi ske; það var mikil eftirvænting meðal þjóðarinnar. En það voru ekki allir, sem vissu hvað mundi koma fyrir. Og þegar það kom fyrir var það mikils viiði i augum sumra, en aðrir lokuðu augunum fyrir því og hættu að gefa því gaum. »Pessi Jesús mun koma aftur á sama hátt og þið sáuð hann fara til himins«, sögðu englarnir við lærisveinana, er Jesús varð uppnuminn til himins frá þeim. Orð Guðs er fult af skýrslum um hvað ske muni niður í gegnum tímann. Og þetta er skrifað til þess að leiðbeina hinni eftir- væntingarfullu manneskju um að endur- koma Hans er nú afyrir dyrum«. Sumir trúa þ\i og undiibúa sig, aörir láta sig það engu skifta, og halda áfram sama lifi og áður. Vinurl Hvað hugsar þú? Tekur þú eftir hinni miklu eftirvæntingu og ótta, sem nú á sér stað meðal þjóðanna? Tekur þú eftir því, hve fólk yfirleitt gefur sig litið að andlegum málum, en sækist mikið eftir skemtunum? Hefir þú gert þér grein fyrir, hvað er að gerast? Veiztu að starfað er með elju að því að bera út fagnaðar- erindið til heiðingjanna lengst i burtu, og veiztu að þúsundir og aitur þúsundir af svörtum og gulum mönnum rétta fegins- höndum út faðminn f átlina til boðskap- arins? Hefir þú gert þér grein fyrir, hvaða þýðingu þetta hefir? Hefir þú tekið ettir því, að þjóðirnir hervæða sig með binum gifurlegustu morðtólum, um leið og þær eru að tala um að hafa frið — og hefir þú ályktað nokkuð af þessari staðreynd? Sérðu hvernig djúpið verður alt af meira milli fátæka og ríka fólksins, og tekur þú eftir ósamlyndinu, sem er milli atvinnu- veitenda og þeirra, er atvinnunnar þurfa með? það væri hægt að spyrja meir — því nær óendanlega lengi. En gott er að vita, að Guðs orð gefur svar við hverri einustu spurningu. Það mun koma fyrir sfórkostlegur atburður áður en langt um líður. Heimuiinn fær að sjá hið mesta, sem nokkru sinni hefir viðboiið — Jesús kemur til þess að sækja »brúði« sína. Vinurl Ertu reiðubúinn að mæta honum. »Syng irteð oss þakkarljóð«r. Syng með oss þnkkarljóð, himnanna herskari glnður, heill vorri fngna þú, englanna dýrðlegi staður; dauðlegra láð dásama vegsami náð: Guðs sonur gjörst hefir maður. Syngið með gleðirödd Guði dýrð, heims- þjóðir allar, Guð sig vorn föður, hans sonur vorn bróður sig kallar; friður á jörð fluttur er syndugri hjörð; lofið Guð, lýðtungur snjallar. Guð með oss, kom þú i hjarla mins her- bergi’ að fœðast, hjarta míns svíðandi benjarnar annars ei grœðast; lif þú i mér, lifað svo fái ég þér; lát mig, ó Kristur, þér klœðast.

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.