Ljósvakinn - 01.11.1928, Qupperneq 15

Ljósvakinn - 01.11.1928, Qupperneq 15
LJÓSVAKINN 65 þótt slikar hugmyndir væru jafnvel æski- legar. Sérhver kenning í þá átt hlýtur því að vera blekking, orð Drottins raskast ekki. — Og svo Kr ishnamurti, sem sagt er að sé verkfæri heimskennarans Hvað er hægt að segja um hann? Það er óþarfi að dvelja við persónu hins unga Iadverja. Sem maður er hann að öllum líkindum eins góður og ein- lægur og hver og einn hinna guðspekinganna, sem eru i þessum iélagsskap og út- breiða þessa kenningu. En eitt hlýtur að vera leyfilegt að spyrja um: Er það satt að »binn mikli heimskenn- ari« komi fram annað slagið t. d. við hvert »nýtt tíma- bil« í einhverjum manni? Með öðrum orðum, hefir slíkt komið fyrir fyr á öld- um? Var Buddha slíkt verk- færi, Múhameð og kannske Kristur líka? Til þess að fara ekki út í heimspeki trúarbragða, sem er heldur ekki markmið þessarar hugleiðingar, viljum við aft- ur athuga orð Guðs viðvikjandi þessu at- riði, sem alt af hefir reynst og er enn ljós það, sem skfn á myrkum stað, jafnvel í flækjum heimspekinnar, sem vor mentaði heimur hefir nú svo mikið af að segja. I*eir sem trúa Bibliunni, þekkja ekki nema eina holdgun: Jesús Kristur sonur Guðs kom í mannlegu holdi og varð öllum Frelsari, sem vilja taka á móti honum sem slikum. Talar ritningin um fleiri er koma skuli á sama hátt, eða lalar hún um leyndardómsfullan »heimskennara« sem noti aðra sem verkfæri? Koma Krists var greinilega boðuð við syndafallið: Sæði konunnar átti að merja höfuð höggormsins. í hin 4000 ár sem liðu þangað til hann kom sem maður meðal manna, var aftur og aftur spáð um komu hans. Fyrirheitið sem Abraham var gefið var um sæðið, sem skyldi koma. Gal. 3, 16. 17. í sálmunum er oft talað um líf hans hér á jörðu. Jesaja spáði um hvernig hann mundi koma fram: hann ætti að fæðast. (Jes. 7, 14; 9. 6.) Mika sagði fyrir um fæðingarstað hans, Betle- hem (Mik. 5, 1. 2 ). Daníel spáði um árið sem hann tæki til starfa sem prédikari og Messias (Dan. 9, 25.—27.). Alt þetta og margt fleira um þetta, var sagt fyrir um hann »af Móse og spám. og sálmunum«, meira að segja í öllum »ritningunum« (Lúk. 24, 27| 44.). Alt þetta rættist. Eftir er nú að eins spádómurinn um endurkomu hans, sem ekki er langt að biða að rætist. Nokkura aðra holdgun en Jesúm Krist talar Biblfan ekki um. Rétt fyrir dauða sinn talar hinn aldni Jakob um hann sem Silo, »þann sem semur frið«, sem eigi að koma. 1. Mós. 49, 10. Tíminn var fast á- kveðinn í ráðsályktun hins Alvitra, og eins og áður hefir verið vikið að, sagður fyrir fyrir munn Daníels spámanns. Fegar tim- Vestrœna menningin beygir sig fyrir dulrœmim kenningum Austur- landa, sem á margan hált er reynl að innleiða i kristindóminn. Orð Guðs bendir lil pessa hjá spámanninum: »Peir eru allir i auslurlenskum göldrum og spáförum«. Jes. 2, 6.

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.