Kennarinn - 01.06.1905, Page 7

Kennarinn - 01.06.1905, Page 7
kennarinn. 47 fórna syni sínum. Þá kallar engill drottins til hans og segir: „Abra- liam, Abraham!“ Abraham svarar: „Hér em eg.“ Engillinn segir þá: „Legg ekki hönd á sveininn og gerðu honum ekkert; því nú vcit eg, að þú óttast guð, fyrst þú synjaðir mér ekki um einkason þinn." Saud fórnad í statímn.—Þá litur Abraham við, og sér hrút einn fastan á hornunum í runna. Hann fer og tekur hrútinn og fórnar honum sem brennifórn í stað sonar síns. Þannig hlýddi Abraham guði til þess að fórna syni sínum, sem hann elskaði. Og guð gaf honum svo aftur son hans. K/ERU BÖRN! Börnin, sem elska íoreldra sína, hlýða þeim. Og börnin, sem elska guð, hlýða guði. Elskið þið ekki guð? Guð gaf ykkur einkason sinn, Jesúm Krist. Hann fórnaði sér fyrir ykkur. Svona elskaöi guð ykkur. Ættuð þið þá ekki að elska hann? Jú, sjálfsagt! En sýnið þið það þá, að þið elskið hann. Sýnið það með því að gera alt það, sem guð býöur ykkur að gcra. Abraham sýndi, að hann elskaði guð. Sýnið þið það líka, börnin mín. 4. v. af sálminum „Ilærra, minn guð, til þín“ á síðustu bls. --------o-------- VONDUR EINS OG BJÖRN. „Þú ert vondur eins og björn,“ — sagði Beta við Villa. Jakob föðurbróðir blistraði. „Birnir eru ekki vondir við sína eigin,“ sagði hann. „Nú, eg þekti einu sinni björn.“ — Beta og Villi hlupu nú bæði til hans, og klifruðu upp í kjöltu hans. „Nei, er það satt? Iícfir þú nokkurn tíma þekt björn?"—kall- ar Villi upp yfir sig. Og augun standa í honum. „Reyndar vorum við ekki neinir mátar“—segir Jakob föður- bróðir; „en eg var vanur að fara á bjarndýraveiðar þegar eg var í Canada. Og cinu sinni var eg með flokk veiðimanna. Og rétt fram undan okkur sáum við — hvað haldið þið?“ „Eifandi björn!“—segja þau bæði í cinu og standa á öndinni. „Já, lifandi bjarndýrsmóður og litinn hún, sem hún átti. Hund- arnir stukku óðar af stað. Birnan tók að hlaupa, um leið og hún sá þá; en barnið hennar litla gat ekki hlaupið eins íljótt og hún, svo hundarnir nálguðust það meir og meir. En hvað haldið þið að hún liafi þá gcrt? SkilicJ eftir litla soni'nn sinn? Ekki neitt líkt því. Hún stingur trýninu undir hann og kastar honum á undan sétf Illcypur svo á eftir. Sendir hann aftur á stað í loftinu á undan sér. Og hleypur svona áfram með hann hálfa aðra mílu. En þá var hún orðin of þreytt til þess að halda áfram lengur, svo hundarnir kom- ast að hcnni. En þá sest hún, heldur barninu sínu í afturlöppunum, en ber hundana frá sér með framlpppúnum. En hvað hún öskraði!“ Það fór hrollur um Betu. „Það heyrðist til hennar fleiri mílur, Iiún gleymdi aldrei barn-

x

Kennarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kennarinn
https://timarit.is/publication/487

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.