Kennarinn - 01.08.1905, Blaðsíða 8
64
KNÉNARINN.
okkur. Við vitum ekki, hvað orðið er af þessum Móses.“ t>á
steypir Aron gullkálf úr gullinu, sem fólkið færði honum. Og það
færir svo gullkálfinum fórnir með glaum og gleði.
Hegningin.—Þegar Móses kemur ofan af fjallinú, sér hann
gullkálfinn og fólkið vera að dansa í kringum hann. Veo'ður hanrl
þá reiður. Og hann kastar steintöflunum úr höndutn sér og brýtúr
þær. Hann tekur gullkálfinn og brennir hann, mylur hann í smátt,
dreifir duftinu á vatnið og lætur fólkið drekka. Þá skipar hann son-
um Leví að fara um herbúðirnar og deyða hvern, sem verði fyrir
þeitn. Og þeir deyddu þrjár þúsundir manna vegna þessarar synd-
ar fólksins.
KÆRU BÖRN ! Lexían þessi sýnir ykkur, að gttð er heilagur
guð. Hann hatar alla synd. En hún sýnir ykkur líka, að guð vill
að þið séuð heilög. Hvernig getið þið verið heilög? Þið eruð
heilög þegar þið trúið á Jesúm Krist og afneitið allri synd. Guð
hefir kallað ykkur í skírninni til þess að vera heilög börn sín með
því að afneita öllu illu og trúa á föðurinn, soninn og heilagan anda.
Guð hjálpi ykkur til þess að vera heilög börn hans.