Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.01.1910, Page 5

Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.01.1910, Page 5
II. ARG. MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 5 ing til Leckeyjar. Á skipinu kom jeg auga á ungan stúdent sem mjer leizt einkar vel á. Jeg komst í samtal við hann. Hann var lögfræðingur, ættaður frá Norvegi norðarlega. Þegar komið var til hallarinnar missti jeg sjónar á honum í mannmergð- inni og sá hann ekki fyr en annan daginn, sem við vorum í Leckey. Þá hitti jeg hann í' liallargarðinum eftir kvöldsam- komuna og gengum við þá sam- an út í skóg ásamt tveim dönsk- um ungum stúdentum, þar höfðum við skemtilegt samtal um ýmsa liluti. Af tilviljun ’spurði jeg hann, livers vegna hann hefði komið á svona fund. »Af forvitni, held jeg helst«, sagði hann. Jeg vildi ekki fara . lengra út í þetta í návist ann- arra og sneri talinu að öðrum hlutum. Næsta dag gengum við svo háðir út í skóg burt frá alfara- vegum, og komum þar að lítilli skógtjörn í fallegu rjóðri. Þar inti jeg aptur til um svarið sem liann liafði gefið mjer kvöldið áður. Hann sagði að sig hefði langað til að vita, hvernig stúdentar gætu lifað saman á kristilegum fundi, en sjálfur væri hann húinn algjör- lega að missa barnatrú sína. Hann kvaðst uppalinn á trúuðu heimili; faðir lians var læknir. Þar hefði sjer verið haldið í andlegri þvingun, þar til liann kom í latínuskólann. Þá hefði hann komist i efasemdir og allt hefði horfið, sem hann hafði trúað á. Hann sagði mjer ná- kvæmlega frá öllu, hvernig hann liefði átt í haráttu um ýms spursmál. Það var raunasaga. Síðan þögðum við litla stund. Jeg sat og var að liugsa um livað jeg ætli að segja við mann í slíkum kringumstæðum, og fanst mjer alt, sem jeg hafði að segja, vera svo einskis nýtt. En alt í einu datt mjer í hug eitt vers úr sænska sálminum sem hjer er tilgreindur að ofan: »Segöu þeim hvað sjálfur hlaustu, Segðu þeini hvað fannslu hjer, Pcgar elskan óverðskulduð Ómaklegum veittisl þjer«. Þá vissi jeg hvað jeg átti að segja, og Ijet trúnað mæta trú- naði. Jeg sagði honum trúar- sögu mína, og síðan gengum við heim eptir fjögurra tíma sam- veru. — Eptir það áttum við mörg samtöl um kristileg efni, og skildum með mikilli vinsemd. Hann skrifaði mjer seinna frá Ivristjaníu og stóðu þar í þessi orð: »Þökk fyrir ógleymanlegu samveruna á Leckey; jeg minnist hennar með gleði!« Hve mikið eða lítið hefur verið bak við þessi orð, veit jeg ekki, eða hvort hann hefur algjörlega fundið frið í frelsara sínum, en ávalt ann jeg sálmin-

x

Mánaðarblað K.F.U.M.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/494

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.