Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.01.1910, Blaðsíða 13
II. ÁRG.
MANAÐARBLAÐ K. F. U. M.
13
Blómgaðist smámsaman hagurhans
svo aö liann hefur 1000 verkastúlkur
á verksmiðju sinni. Hann fer með
þær eins og væru þær dætur hans
og lifir við sama fæði og þær. Hann
er vanur að segja, að til þess að
geta gjört gott silki þurfi dyggðuga
sál. Hann heldur prest til þess að
vera sálusorgari starfsfólks síns og
vinnur sjálfur að kristindómsfræðslu
meðal þeirra, sem hann á yfir að
ráða. Afleiðingin er sú, að flestar
stúlkurnar eru orðnar kristnar. —
Dæmi það, sem Hatano gefur með
liíi sínu og starfi, hefur haft mikil
álirif á marga vinnuveitendur. Sji-
mada segir: »Hann er sómi þjóðar-
innar, og væru allir eins og hann,
væri ekki hugsanlegt, að spilling
eins og sú, er kom í ljós við sykur-
hneykslið, gæti átt sjer stað«.
Morðið á prins Ito er mjög harmað
i K. F. U. M. í Japan og Korea. Pótt
ckki væri hann kristinn sjálfur
talaði hann á mörgum fjelagsfund-
um bæði i Japan og Korea og hafði
opið auga fyrir starfinu í K. F. U. M-
Á skilnaðarhátíð, sem fjelagið hjelt
fyrir kínverska stúdenta, var slóri
salurinn i K. F. U. M. í Tokio troð-
fullur. Kennslumálaráðherrann í
Japan, borgmeistarinn í Tokio, og
forseti fjelagsins i Japan, S. Ebara,
sem er alþingismaður þar, hjeldu
ræður við þá hátíð.
Átta amerískir framkvæmdarstjór-
ar hafa verið sendir og eru kostaðir
af K. F. U. M. í Bandaríkjunum til
þess að starfa að kristniboði í Austur-
löndum.
Hinn nal'nfrægi prcstur í Lund-
únum, F. B. Meyer, hjelt nýlega
ræðu i Lundúnum eptir lieimkomu
sina frá Austurlöndum. Hann sagði
meðal annars, að væri hann miljóna-
mæringur, væri það engin fyrirtæki,
sem liann heldur vildi leggja fje
sitt i en i fjelagshús K. F. U. M. í
Austurlöndum. Hann endaði ræð-
una á þessa leið: »Ef jeg í eitt ár
ætti hina brennandi mælsku seraf-
anna, skyldi jeg ferðast um allt
þetta land og vekja Stór-Bretaland
með þessari hugsun: Ef vjer ekki
bregðum við og höldum austur til
þess að kristna Kína, þá heldur
Kína vestur á bóginn og gjörir land
vort heiðið. Nú er hentugur tími«.
Til fjelagsins í Jerúsalem er kom-
inn nýr framkvæmdarstjóri enskur.
Hann heitir Stuart Donnithorne.
Er hann kom þangað, var honum
haldin fagnaðarsamkoma. Farvoru
80 ungir menn viðstaddir.
K. F. U. M. i Jerúsalem og Nazarel
eiga góðum þrifum að fagna.
Fjelngsstarf í Evrópu.
Pýzlcaland. Fjelagið í Bcrlín hefur
sjerstaka biblíulestrarflokka fyrir
bakarameistara, herforingjaefni,
verkfræðinga,verzlunarmenn,vagna-
smiði, leðursala, bakarasveina, hár-
skerara, slátrara, hermenn, klæð-
skera og póstþjóna.
Þar er hægt að segja að starfinu
sje rækilega niðurskipt.
K. F. U. M. i Núrnberg er 11 ára
gamalt. Það er í 7 deildum og laun-
aröframkvæmdarstjóraog hefur 1000
meðlimi. í haust sem leið var vigt
nýtt fjelagshús rjett viö járnbraut-
arstöðina. I sambandi við það er
stórt og fint hótel og bcr það
rekstur hússins.
Frakkland. Þjóðfundur fjclagsins
i Nimes getur um vöxt og viðgang
starfsins á síðustu þrem árunum.
21 fjelag hefur verið stofnaö og 12
unglingadeildir. Tala fjelagsinanna
á Frakklandi er þó ekki meiri en
5721.
Spánn. Þar er líka framför, þólt