Ný kristileg smárit - 01.11.1893, Blaðsíða 3

Ný kristileg smárit - 01.11.1893, Blaðsíða 3
27 þig saela, og sú kemur stundin á síðan, að hann mun heilsa þjer með fögnuði í því landi, þar sem skoðun er komin í stað vonar og bænin er orðin að sælli iofgjörð og tilbeiðslu«. Skírteinið. Drengur nokkur gekk ofan að hafnarbryggjunni í stórri borg og spurði eptir skipstjóranum á einu af skipunum, sem lágu þar. nþarna kemur hann«, svaraði honum gamall sjómaður, sem heyrði spurn- ingu drengsins. Drengurinu gekk til skipstjórans og heilsaði honum kurteislega. Skip3tjórinn spurði, hvert erindi hans væri. »Mig langar til að verða sjómaður og komast á skip«, svaraði hann, »þú, að verða sjómaður, og hjá hverjum?« — »Hjá yður, herra skipstjóri, ef þjer viljið lofa mjer með«. — •Hefir þú áður verið á skipi?« — »Nei, aldrei, herra skipstjóri«. — »Hvers vegna viltu komast á skip nú?«—Jeg ætla að senda heuni móður minni kaup- ið mitt; hún er ekkja og einstæðingur, og mig lang- ar til að lialda henni frá sveit, ef eg gæti«. Skipstjórinn fjekk góðan þokka á piltinum og fjell vel í geð, hvernig hann talaði um móður sfna. »Ejett er nú það, drengur minn; jeg vænti að þú hafir þá öll nauðsynleg skírteini hjá þjer?« — »Skírteini! svaraði sveinninn; »nei, þau hefi jeg ekki til«. — »Engin skírteini, ja, þá get eg ekki tekið þig«. — »Æ, gjörið þjer það samt, herra skipstjóri; þjer skuluð sanna það, að jeg skal verða góður og skikkanlegur drengur«. — »Jeg má það ekki; það er á móti reglum okkar. Við tökum engan, nema

x

Ný kristileg smárit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný kristileg smárit
https://timarit.is/publication/496

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.