Ný kristileg smárit - 01.11.1893, Blaðsíða 16

Ný kristileg smárit - 01.11.1893, Blaðsíða 16
40 beini vöndur er ógn viðkvæmur fyrir öllum andvara; það er varla svo mikið logn, að blöðin bærist ekki svolítið. f>aðan er komið orðtakið í skógi vöxnu löndunum: »að titra eins og asparlauf«. Af þessu hefir myndazt kristið æfintýri : Trjeð, sem Kristur var krossfestur á, segir sagan, var tek- ið af ösp. 011 hin skynlausa skepna grjet dauða frelsarans. Sólin missti sinnar birtu, fortjald must- erisins rifnaði í tvennt, jörðin skalf og björgin klofnuðu. En aspartrjeð fanu eigi til neinnar með- aumkunar, heldur varð það til þess að pína hann til dauða. Eyrir þetta miskunnarleysi hefir Guð lagt það á öspina, að skjálfa og titra fram að dómsdegi. Ekki of þungt- Doktor Guthrie gekk einhvern dag um stræti í Edinborg og sá litla stúlku bera þungt barn. Með sinni venjulegu lijartagæzku vjek Guthrie sjer að stúlkunni og sagði: »|>es3i krakki er mikils til of þungur fyrir þig, telpa mín«. Stúlkan svaraði hon- um með undrunarsvip: »Nei, hann er ekki of þung- ur; það er hann bróðir minm. Hún gat ekki skil- ið það, að bróðir sinn gæti með nokkru móti verið of þung byrði fyrir sig. Kirkjublaðið, útg. prcstaskólak. pórliallur Bjarnarson í Reykjavík, 1. árg. 1891, 7 arkir, 75 a. (25 cts.), II. árg. 1892, 15 arkir, 1 kr. 60 a. (60 cts), III. árg. 1893. 16 arkir auk Smárita, l kr. 50 a. (60 cts.) fást hjá flestöllum prestum og bóksölum landBÍns og útg. Hingað til hafa yfir 40 prestar og um 30 leikmenn látið til sín heyra i Kbl. i bundnum og óbundnum st^l. Inn á hvert einasta heimili. Reykjavík. Prentsmiðja Ísaíoldar 1893.

x

Ný kristileg smárit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný kristileg smárit
https://timarit.is/publication/496

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.