Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Blaðsíða 3

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Blaðsíða 3
IujI \uA IIIIIIIMll i JOH, MANAÐARBLAÐ KFUM R E Y K J AV í K 2. ór J úl f 1927 Kristindómur án trúarsetninga. Menn tala opt um kreddulausan kristin- dóm. Þeg-ar spurt er um, hvað' menn eigi við með því, þá kernur í ljós, að menn vilja eng- ar ákveðnar trúarsetningar. En þetta er ein- mitt árás á sjálfan kristindóminn. Sannleik- urinn er sá, að það er aðeins hægt að ráðast á boðskap kirkjunnar með nýrri trúarsetn- ingu, sem þá verður að standast prófið. Það er grundvallarkenning trúar vorrar að Jesús frá Nasaret sje frelsari heimsins. Þessu er hægt að neita með annari setningu, og hún er á þessa leið: Jesús var ekki frelsari heims ins. Það er hægt að halda því fram, að hann hafi ekki verið það, að hann hafi ekki gert liröfu til þess að vera það, en þá verður að lýsa þessari skoðun með nýjum setningum, svo að þessi skoðun verður þá heldur ekki kreddulaus. En að ráðast á eitthvað og segja: Jeg held engu fram, jeg aðhyllist enga setn- ingu, jeg hefi enga fasta skoðun, en samt ræðst jeg á trúna, það er mjög fátækleg bar- dagaaðferð. Menn geta lýst yfir þeirri skoðun, að krist- indómurinn sje frelsandi sannleikur; menn geta einnig lýst yfir þeirri skoðun, að krist- iiidómurinn sje ekki frelsandi sannleikur, en það er ekki hægt að lýsa yfir þeirri skoðun, að maður hafi enga skoðun, nema maður ætl- ist til, að ekkert mark sje tekið á orðunum. og þá verður árásin að engu. Margir vilja losna við trúarsetningarnai, svo að menn hafi enga ákveðna skoðun um kristindóminn, enga ákveðna skoðun um Jes- úm. Því hin ákveðna, skoðun um Jesúm, með iionum eða móti, verður trúarstaðhæfing. Ei' menn hugsa sjer að kollvarpa trúarsetningu kirkjunnar, þá verða menn að bera fram þá trúarsetningu, sem er henni gagnstæð. En að ætla sjer að gera einhverja skoðun að engu með því að hafa enga ákveðna skoðun, það er blekking. Það er hægt að verjast svei'ðshöggi með öðru sverði eða með skildi, en það er ekki hægt að verjast með engu. Trúarsetningalaus kristindómur er kristin- dómur án sannfæringar, trú út í bláinn. Ef jeg aðhyllist þá kröfu, að kristindómurinn skuli verða án játninga, án ákveðinna trúar- sanninda, þá skuldbind jeg mig til þess að eiga kristindóm, sem engu ákveðnu heldur fram, ekkert kennir og ekkert veit. Því um leið og jeg hefi ákveðna skoðun — um mína eigin sál — um synd mína, um eilíft líf, um Jesúm, þá er kristindómur minn ekki trúar- setningalaus. Án trúarsetninga skuldbind jeg mig til þess að hafa enga ákveðna skoðun. jafnvel enga sannfæring um minn eigin kríst- indóm. Jeg má ekki einu sinni liafa þá skoðun, að þessi trúarsetningalausi kristindómur sje betri en sá, sem bundinn er af trúarsetning- um, þ.ví að halda fram slíkri ákveðinni skoð- un væri að gera sjálfan sig háðan ákveðinni skoðun.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.