Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Blaðsíða 5
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
3
að til leiðbeiningar og- hvatningar. Mjer hafa
cpt fundist orð hans vera skipandi, en hann
hefur sjálfur hlýtt þeim áður en hann krafð-
ist hlýðni annara. Hann hefur aldrei látið
sjer nægja að tala, hann á þá trú, sem starf-
ar. Vjer könnumst við hinn úrræðagóða
framkvæmdamann. Hjartað skipar hendinni
og höndin hlýðir, og það finnur K. Z., að þeg-
ar hann á frumkvæði að einhverju, þá hvílir
mikil ábyrgð á honum, og hann fer þegar
að koma málinu í framkvæmd og vinnur þá
rr.eira á 2 klukkustundum en aðrir á 2 mán-
uðum.
Opt hef jeg verið vottur að eldlegum
áhuga hans, og jeg hef opt tækifæri til að
gleðjast yfir góðum tillögum hans og holl-
um ráðum. Iíann er bæði þungbrýnn og
brosandi. Það væri ekki rjett að segja, að
hann væri ánægður með alt, kröfuharður er
hann, en fyrst við sjálfan sig, og það verð-
ur ekki um hann sagt, að hann kunni að
hlífa sjer. Mjer kemur K. Z. svo fyrir sjón-
ir, að hann tileinld sjer þessi orð: Vakið,
standið stöðugir í trúnni, verið karlmann-
legir, verið styrkir; alt hjá yður sje í kær-
leika gjört.
Þannig kannast jeg við hann.Jeg kannast
við hinn einbeitta og ákveðna mann, en jeg
sje hann opt brosandi í yndisfögru starfi.
Við hann hefur verið sagt: „Gæt þú lamba
minna“. Hlýðinn þeim orðum hefur hann
árum saman veitt forstöðu Sunnudagaskóla
hjer í bænum. Þúsundir barna hafa hlotið
blessun í þeim skóla, og starf þetta hefur
haldið við æskugleðinni hjá K. Z. sjálfum.
Hann væri áreiðanlega ellilegri og þreytu-
legri, ef hann hefði ekki starfað meðal
barnanna. Þangað hefur hann opt komið
þreyttur, en farið þaðan óþreyttur og í
ljettu skapi. Þær stundir auka honum kraft,
cg fjöldamörgum veita þær blessun.
Þegar meðlimir K. F. U. M. og K. rifja
upp fyrir sjer minningar úr sögu fjelaganna,
þá er þeim ljúft að minnast þess stuðnings,
er K. Z. og kona hans hafa veitt hinu kristna
starfi meðal æskulýðsins, og margir eru
þeir, sem gleðjast og þakka, er þeir hugsa
nm, hve miklum kærleika og velvild starf
þetta ávalt mætir hjá borgarstjórahjónun-
um.
Þegar þessa er gætt, þá var það öllum fje-
lagsmönnum mikil gleði, að K. Z. var í
liðnum maímánuði kjörinn heiðursf j elagi K.
F. U. M.
Mjer hefur verið falið að rita hjer nokkur
orð um K. Z., en jeg veit, að hann kann mjer
engar þakkir fyrir. En jeg er því svo vanur,
að geta ekki gert öllum til hæfis, að mjer
gerir ekkert, þó að hann reiðist mjer í svip,
og auk þess veit jeg, að fjöldamargir kunna
mjer þakkir fyrir að hafa bent á, hve mikið
K. F. U. M. á honum að þakka. '
Guði sjeu þakkir fyrir þá, sem hafa sjeð,
að það er hin mesta göfgi að vinna í vín-
garði Drottins. Þar hlotnast mönnum hin
niesta sæmd, þar er þjónustan eptirsóknar-
verð tign. Bj. J.
----o----
r
Iþróttavöllur
K. F. U. M. í Kaupmannahöfn.
Sunnudagurinn 3. júlí var mikill hátíðis-
dagur fyrir K. F. U. M. í Kaupm.höfn. Þá
var vígður og tekinn til fullra afnota, með
r likilli við'höfn og að viðstöddum f jölda boðs-
gesta og fjelagsmanna, hinn nýi skemmti-
garður og íþróttavöllur fjelagsins.
Fyrir nokkrum árum eignaðist fjelagið
allstórt landsvæði, fullar 20 dagsláttur, í
Emdrup, eigi mjög langt frá miðbiki borgar-
innar og hefur fjelagið unnið að ræktun þess
og byggingu, með miklum dugnaði og fórn-
fýsi, síðustu sjö árin.
Nú er svæðið fullgjört og tekið til fullra
afnota. Því er svo haganlega fyrir komið,
að það er hvorttveggja í senn, fullkominn
íþróttavöllur og skemmtigarður, þar sem fje-
lagsmenn geta hafst við á sumrin og ljett