Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Blaðsíða 9

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Blaðsíða 9
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 7 KAP. 10. Því var svo varið í raun og veru að frú Errol hafði orðið vör við margt sorglegt í líknarstarfi sínu meðal fátæka fólksins í litla þorpinu, sem virtist svo fallegt, er menn horfðu á það ofan af heiðinni. En það var ekki allt svo glæsilegt er menn sáu það nálægt sjer, eins og það virtist álengdar sjeð. Hún hafði fundið örbirgð og iðjuleysi og fáfræði mikla þar, sem hefði átt að eiga sjer stað atorka og vellíðan. Og hún hafði eptir nokkurn tíma orðið áskynja um að Erlboro var að allra dómi langversta þorpið í þeim hluta landsins. Sjera Mordaunt hafði sagt henni heilmikið af vonblekkingum sín- um og erfiðleikum í starfinu, og heilmikið Iiafði hún sjálf rekið sig á. Umboðsmenn- irnir, sem settir voru yfir jarðirnar, voru valdir með því fyrir augum að þóknast jarl- inum, og höfðu aldrei haft áhuga á því, að gæta hags leiguliðanna, og kærðu sig ekkert um eymdarhag hinna fátæku. Margt ihafði þessveg-na verið vam-ækt, sem við hefði átt að gjöra, og svo hafði ástandið farið hríð- versnandi. Sjerstaklega var ,,Jarlshverfið“ til veru- legrar smánar fyrir sína ramskældu kofa og' ræflalegu, heilsulitlu og hirðulausu íbúa; það var reglulegt ræflahverfi. Þegar frú Errol kom þangað fyrst, fór um hana kald- ur hrollur. Eymdin, sóðaskapurinn og ónytj- ungshátturinn er hálfu ömurlegri á að sjá i sveit en í ræflahverfi stórborganna. Það virtist ekki svo mikill vandi að ráða bót á því. Og er hún virti fyrir sjer hin óþrifalegu vanræktu böm, er uxu upp með tóman íuddaskap og slæpingshátt fyrir augum og allskonar ósvinnu, þá hugsaði hún til litla drengsins síns, sem ól bernskualdur sinn í stórri og glæsilegri höll, og átti að venjast umönnun og þjónustu eins og ungur prins, og hafði ekki af öðru að segja en allsnægt- um, hóglífi og fegurð Við þá hugsun kom djörf hugsun inn í hennar vitra og milda móðurhjarta. Smátt og smátt var hún farin að sjá það sem aðrir þegar höfðu sjeð, að það var hin mikla hamingja litla drengsins Itennar að ná hylli jarlsins, svo að það væri alls ekki ólíklegt að honum yrði ekki neitað um neina ósk, sem hann ljeti í ljós. „Jarlinn lætur allt eptir honum“, sagði hiún við sjera Mordaunt, „hann reynir í öllu að fara eptir óskum hans. Hversvegna ætti ekki að láta þetta eptirlæti verða öðrum til góðs? Það ætti að vera mitt hlutverk að sjá um að þetta geti orðið svo“. Hún vissi að hún treysti hinu göfuglynda hjarta drengsins. Svo sagði hún honum sög- una um „Jarlshverfi", því að hún var viss um að hann mundi tala um það við afa sinn, og vonaði að gott eitt mætti að því leiða. Og þótt öllum fyndist það undarlegt, þá leiddi það til góðs. Því var í raun og veru svo varið að ekkert hafði eins mikil áhrif á jarlinn og hið fullkomna traust sonarsonar hans, sú trú Sedriks að afi hans væri alltaf að hugsa um að gjöra það sem væri rjett og göfugmannlegt. Jarlinn gat ekki fengið af sjer að láta drenginn verða varan við, að hann hefði enga tilhneigingu til þess að vera göfuglyndur, og að hann væri vanur að vilja hafa sitt fram hvort sem það væri rjett eða langt. Það var svo mikið nýnæmi fyrii' hann, að borin væri aðdáun fyrir honum eins og hann væri einn af velgjörðamönnum mannkynsins, og ímynd allrar göfgi, að hann hryllti við hugsuninni um það, ef hann þyrfti að líta inn í ástúðlegu móbrúnu augun og játa, að hann væri fautalegur, sjálfselsku- fullur gamall hrappur, sem aldrei hefði gjört nokkurt almennilegt sómastrik á æfi sinni, að hann kæi'ði sig ekkert um Jarls- hverfi eða fátæklingana þar, eða eitthvað sem hefði sömu áhrif. Það var komið svo, að honum var farið að þykja svo vænt um litla di'enginn, að hann vildi heldur gjöra sig sekan í því að gjöra eitthvert góðverk við og við, en missa virðingu og traust drengsins. Og svo, — þótt hann hlægi að sjálfum sjer — þá sendi hann eptir nokkra

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.