Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Síða 6
4
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
s.ier upp á ýmsan hátt. Þar eru 4 knatt-
spymusvæði, 3 tennissvæði, æfing-asvæði
f.vrir skátana, íþróttamannaskáli með full-
komnasta baðútbúnaði, samkomuhús fyrir
minni og stærri samkomur, veitingastofur o.
s. frv. Gangstígar með blóma- og trjáreitum
á báðar hendur umlykja íþróttasvæðin ov
gefur það öllu sjerstaklega fagran og ein-
staklegan svip.
Svæðið með öllum útbúnaði hefur til þessa
kostað um 400.000 krónur og hefur það að
mestu leyti verið lagt fram í vinnu og gjöf-
um fjelagsmanna sjálfra.
Fjelagið heldur almennar guðsþjónustur
þama á hverjum sunnudegi um sumartím-
ann til þess að bæta úr kirkj uleysinu í Em-
drup. Væntir fjelagið sjer mikillar blessunar
fi’á þessum stað bæði fyrir íþróttalífið og
andlega lífið innbyrðis.
----o-----
Sumarbúðirnar.
Þegar stnnarsólin kemur,
Sveitir gróa, tún og móar,
Fjallahliðar fagran skrúða
Færast i með blóma nýjum,
Burt úr ryki bæjar taka
Brátt að fara stórir skarar;
Dreifast út uni sjó og sveitir,
Sitt að finna brauð með vinnu.
Fjöldi’ af ungum fjelagsdrengjum
Fara’ i sveit og bjargar leita;
Fækkar i bænum, falla að vana
Fundahöld á virkum kvöldum.
Fjelagslifið fundið hefur
Framrás þvi á vegum nýjum;
Farveg breytt i flestum háttum,
.Fjelagsandinn sami að vanda.
(Úti og inni I. 2. 3.)
Margir eru þeir, sem fara burt úr bænum
á vorin, en það eru þó ekki fáir drengir, sem
verða að vera í bæjarrykinu allt sumarið.
Þegar geislar sumarsólarinnar flæða yfir
landið, þá sjá þessir drengir sumarfegurðina
breiðast yfir allt, en þó helst í fjarska. Þá
vaknar sumarþráin í hjörtum þeirra. Til þess
að hjálpa drengjunum til að fá þessari heil-
Lrigðu þrá fullnægt, hefur K. F. U. M. reist
sumarbúðir á tveim stöðum, í Kaldárseli og
Vatnaskógi, til afnota fyrir fjelagsdrengi.
Vorið 1925 var bygður skáli í Kaldárseli.
Lfann er til sameiginlegra afnota fyrir fje-
iógin í Hafnarfirði og Reykjavík. Þangað
fara flokkar næstum því um hverja helgi
yfir sumartímann ýmist frá Hafnarfirði eða
Reykjavík. Stundum fara flokkarnir á laug-
ardagskvöldi og eru til sunnudagskvölds,
eða þá á sunnudagsmorgni og eru þar þá
einungis yfir sunnudaginn.
Margar sólskinsrikar ferðir er búið að
fara þangað í sumar. Fagurt er að sjá glað-
an dengjaskara leika sjer á grænum grund-
um. En fegursta stund hverrar ferðar er
]?að, þegar allur hópurinn safnast saman á
fögrum og kyrlátum stað, til þess, á kyr-
látri stund, að beina huga sínum til Guðs.
A slíkum stundum, úti í fjallakyrðinni,
vakna opt fagrir ásetningar í drengjahjört-
um, ásetningar, er síðar geta orðið að bless-
unarríkri framkvæmd.
Til Kaldársels hafa einnig farið flokkar til
vikudvalar, en sumarbúðirnar í Vatnaskógi
hafa einungis verið notaðar fyrir slíka
ílokka. Á þeim undurfagra stað eru dagarn-
ir fljótir að líða. Á morgnana vakna menn
við fuglasöng. — Þegar allir eru komnir á
fætur er safnast saman við fánastöngina, og
fáninn dreginn upp undir hyllingarsöng. Þá
er höfð stutt guðsþjónustustund. Lítill kafli
úr Guðs orði lesinn og talað um það nokkur
orð. Síðan er Guð beðinn að blessa daginn.
Þá er gengið til morgunverðar. Að honum
ioknum fara sumir með veiðistengur niður
að vatninu til þess að veiða silunga, aðrir
fara í leiki eða til einhverra starfa, sem fyr-
ir liggja. Eftir miðdegisverð er það opt að
allur flokkurinn fer í gönguför til nærliggj-
andi staða. T. d. upp á hæðirnar, sem eru
þar í kring, til þess að skoða hið víðáttu-
mikla og fagra útsýni, sem þar blasir við,
eða farið er að skoða fossana, sem eru þar í
grend. I Vatnaskógi og í nágrenni við hann