Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Page 7
5
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
sjest að „fög-ur er vor fósturjörð um fríða
sumardag-a“.
Skömmu eptir kvöldverð eru allir kallaðir
saman og fáninn dreginn niður um leið og
aliur flokkurinn syng'ur fánasöng.
Áður en gengið er til náða er dagurinn
endaður með guðsþjónustustund. Sálma-
söngurinn hljómar í kvöldkyrðinni og talað
er litla stund út frá Guðs orði, og bænin
stígur upp til Guðs með þakklæti fyrir lið-
inn dag og fyrirbæn fyrir ástvinunum
heima og fósturjörðinni. Þannig líða dag-
arnir og skilja eptir yndislegar endurminn-
ingar, sem lengi geymast.
Allt þar til í sumar hafa flokkarnir, sem
farið hafa í Vatnaskóg, orðið að sofa í tjöld-
um, en í sumar var bygður svefnskáli.
Laugardaginn 11. júní, fór 17 manna
flokkur frá K. F. U. M. upp í Vatnaskóg, þar
a rneðal 7 trjesmiðir. Þeir fluttu með sjer
efnið í skálann. Um kvöldið var byrja-ð að
byggja og haldið áfram alla nóttina. Snemma
næsta morgun var byggingunni algjörlega
lokið — skálinn fullgjörður, með rúmum fyr-
ir 18 manns til að sofa í. Allir, sem unnu að
þessu, gáfu sína vinnu og lögðu fram krapta
sína til verksins með mikilli gleði.
Rúmri viku síðar fór drengjaflokkur upp
í Vatnaskóg og dvaldi þar vikutíma. Það
voru sólríkir og ánægjulegir dagar. Annar
flokkur fer væntanlega í lok þessa mánaðar.
Y.
----o-----
K. F. U. M
Útbreiðið blaðið! Til þess að auka útbreiðslu
Mánaðarblaðs K. F. U. M., sem allra mest, er á-
kvoðið að hver nýr kaupancli að yfirstandandi
árgangi 1927, sem borgar við pöntun, fái siðasta
f rgang i kaupbæti mnðan upplagið endist. þar
liyrjaði tiin ágæta saga „Litli lávarðurinn", sem
nr að koma i blaðinu og hlotið hefir svo miklar
vinsældir meðal kaupendanna.
Fjelagar K. F. U. M. og K.l Styðjið fjelagið og
starf þnss i þjónustu Guðs ríkis, með því að
kaupa og útbreiða Mánaðarblaðið. það er starf
snm allir geta tekið þátt i. Margir hafa gjört. það
og gjöra mjög drengilega, en svo eru aðrir, sem
lílið hafa gjöi't. í því efni ennþá. Nú er tækifæri
til að hefjast handa og leggja fram sinn skerf
1il styrktar blaðinu og fjelagihu á þenna liátt.
Alþjóðaíþróttamót K. F. U. M., sem minst var
ii i siðasta blaði hófst, eins og til st.óð, sunnud.
10. þ. m. Hjeðan fóru 8 íþróttamenn t.il mótsins
sem fulltrúar fjelagsins lijer. þeir fóru með
„Lyru“ 30. f. m. til þess að verða komnir ti!
Hafnar nokkru áður en mótið átti að hefjast
Frjettastofa blaðamannafjelagsins fær frjettir af
þeirn svo að segja daglega og get.a menn sjeð þær
í dagblöðunum.
Framkvæmdastjórinn fór til Oslo sem fulltrúi
íslands á alþjóðafund kirkjulegra friðarvina )
siðastliðnum mánuði. Kom hann aptur úr þeirri
för 27. f. m. Um þann fund hefur hann skrifað í
„Lögrjettu" ö. þ. m. — Eptir 4 daga viðstöðu
hjer heima, tók hann sjer fari með Gullfossi til
Danmerkur, fyrst og fremst til þess, að vera við
staddur íþróttamótið i Ilöfn, og cr hann ekkí
væntanlegur heim aptur fyr en um miðjan októ-
ber.
Skemtiför ráðgjörir A.-D. hjer í nágrennið inn-
un skamms með þátttöku frá A.-D. K. F. U. K.
þriggja manna nefnd er að undirbúa hana. —
Allar nánari íregnir og ráðstafanir viðvíkjandi
förinni verða auglýstar i dagbl. „Visir“ og skulu
menn hafa vakandi auga á því.
Afgreiðsla blaðsins í húsi K. F. U. M. ve.rður
opin daglega frá kl. 12—1 og 5—7 fyrst um sinn.
Kaupcndur blaðsins, sem eiga óborgað fyrir
síðasta eða yfirstandandi árgang, eru mintir á
að gera það sem allra fyrst.
-----O-----
Athugið augiýsingarnar á kápunni.
Látið augiýsendurna njóta viðskipta ykkar.